Mikil ofankoma 27. desember 2005 22:14
Íbúar í austurhluta Englands eru hvattir til að láta bílferðir eiga sig næsta sólarhringinn vegna mikillar ofankomu og flughálku á vegum. Í Frakklandi hefur líka víða kyngt niður snjó í allan dag. Mikill snjór var víða í Englandi í dag og ekkert lát hefur verið á snjódrífunni nú í kvöld. Íbúar Frakklands hafa líka fengið líka sinn skerf af jólasnjónum sem aldrei kom hingað á fróna þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir til jólasveinsins. En allt er gott í hófi og líklegast hefur mörgum þótt nóg um í Nancy og Normandí í Frakklandi, þegar snjólagið var farið að skipta tugum sentimetra nú undir kvöld. Enda eru íbúarnir þar ekki vanir slíkum tilþrifum frá veðurguðunum og bílar fæstir búnir undir slíka vetrarfærð. Þó að engin alvarleg slys hafi enn orðið, hafa fjölmargir misst bíla sína út af vegum og lögreglan hefur haft í nógu að snúast. Og þó að bíleigendur í Bretlandi hafi kannski verið eilítið betur undirbúnir en félagar þeirra í Frakklandi, setti stórhríð mark sitt á umferð í Englandi í dag. Allt frá Newcastle í austri til Whitehaven á vesturströndinni hefur snjónum beinlínis kyngt niður og færðin víða eins og við þekkjum af snjóþungum heiðum Íslands. Veðurfræðingar spá mikilli ofankomu í Bretlandi næsta sólarhringinn eða svo og fólk er eindregið hvatt til að notast við almenningssamgöngur eða hreinlega búa sig vel og ganga í vinnunna á morgun.
Erlent Fréttir Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Innlent Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Sjá meira