Minna tjón en óttast hafði verið 24. september 2005 00:01
Fellibylurinn Ríta náði landi í morgun við fylkjamörk Texas og Louisiana. Þar fór hann yfir Galveston, Houston, Lake Charles og New Orleans. Þrátt fyrir ógnarkraft olli Ríta ekki jafn miklu tjóni og óttast hafði verið. Ingólfur Bjarni Sigfússon, fréttamaður Stöðvar 2 og Bylgjunnar, er í Houston í Texas. Ríta var ennþá bylur að stærðargráðu fjögur þegar hún gekk á land í nótt. Þrátt fyrir mikið hvassviðri og hellirigningu er ekki vitað til þess að neinn hafi týnt lífi. Skemmdir eru einhverjar en takmarkast að mestu við eitt og eitt hús eða stöku götur, en ekki heilu borgirnar eins og þegar Katrín gekk yfir. Engar fregnir hafa borist af flóðum vegna rigningarinnar en ár og vötn hafa þó flætt yfir bakka sína. Houston, eina stórborgin á hættusvæðinu, slapp við það versta. Utan Beaumont, Port Arthur og fleiri bæja nærri fylkjamörkum Texas og Louisiana var það New Orleans þar sem afleiðinganna var helst vart. Varnargarðar gáfu sig strax í gær og í dag hefur rignt töluvert. Því flæðir á ný og það mun seinka björgunarstarfi. Þó skemmdirnar virðist í fyrstu ekki hafa verið miklar er ljóst að Ríta var mjög öflug; svo öflug að hún var enn fellibylur meira en tólf klukkustundum eftir að hún gekk á land. Venjulega fjara bylirnar út og halda norður en Ríta fer sér hægt og gæti jafnvel mjakast út á Mexíkóflóa á ný. Þar gæti hún valdið enn meiri röskun á olíuborpöllum og hreinsunarstöðvum og þannig valdið frekari hækkun á olíuverði. Yfirvöld vilja ekki taka neina áhættu og hvetja þá sem flýðu að halda kyrru fyrir. Margir voru þó farnir af hótelum í Houston síðdegis og umferðin inn í borgina var orðin töluverð. George Bush Bandaríkjaforseti er nú þegar farinn að tala um það uppbyggingarstarf sem þarf að eiga sér stað. Þrátt fyrir að Ríta hafi valdið minni skaða en reiknað var með er talið að tjón af völdum hennar muni nema allt að fimm milljörðum bandaríkjadala, eða um 300 milljörðum íslenskra króna.
Erlent Fréttir Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Fleiri fréttir Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Sjá meira