Reyna að heilla óákveðna kjósendur 17. september 2005 00:01
Nú þegar aðeins einn dagur er til þingkosninga í Þýskalandi keppast flokksleiðtogarnir við að vinna óákveðna kjósendur á sitt band. Gerhard Schröder, kanslari, segir Jafnaðarmannaflokki hans best treystandi fyrir framtíð landsins, en Angela Merkel, leiðtogi Kristilegra demókrata, sakar hann um svikin loforð. Mikil spenna ríkir í Þýskalandi vegna kosninganna til sambandsþingsins, en á lokasprettinum fyrir kosningarnar hefur dregið töluvert saman með stjórn og stjórnarandstöðu. Gríðarlega margir hafa ekki enn gert upp hug sinn og því mikið í húfi fyrir flokksleiðtogana við að reyna að vinna kjósendur á sitt band. Leiðtogarnir hafa meðal annars lagt áherslu á efnahags- og atvinnumál og Íraksmál í kosningabaráttunni, sem þykir hafa verið hörð að undanförnu. Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, sagðist í dag feginn að jafnvel Angela Merkel teldi nú að ekki ætti að senda þýska hermenn til Íraks. Á kosningadaginn væri það hins vegar ekki spurning um hver væri með frið á stefnuskránni, meira máli skipti hver gæti staðið við skoðanir sínar, jafnvel undir þrýstingi frá þjóðum heims. Angela Merkel, leiðtogi Kristilegra demókrata, segir hins vegar að það sem hafi orðið til þess að ríkisstjórnin hafi misst traust fólks hafi verið loforð um að skapa tvær milljónir starfa á þremur árum. Hins vegar hafi störfum fækkað um eina og hálfa milljón á þeim tíma. Loforð og svikin loforð hafi æ ofan í æ rýrt traust kjósenda. Það rugli fólk í ríminu og þess vegna kjósi það nýja ríkisstjórn og fyrir því berjist kristilegir demókratar.
Erlent Fréttir Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Innlent Fleiri fréttir Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september Sjá meira