Erlent

Vann 5,6 milljarða í lottói

Atvinnulaus Frakki í Val d´Oise nærri París datt heldur betur í lukkupottinn í dag þegar hann vann andvirði um 5,6 milljarða króna í Evrópulottóinu ásamt einu af sjö börnum sínum. Peningarnir koma eflaust að góðum notum, en tölurnar á lottóseðlinum voru valdar út frá aldri fjölskyldumeðlima. Þótt um háa fjárhæð sé að ræða er þetta ekki hæsti vinningur sem greiddur hefur verið út í Evrópulottóinu því sjö milljarðar komu í hlut Íra sem hafði allar tölurnar réttar í júlí síðastliðnum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×