Bakri fær ekki að snúa aftur 12. ágúst 2005 00:01
Múslimaklerkurinn Omar Bakri fær ekki aftur að koma til Bretlands þar sem breska ríkisstjórnin telur veru hans í landinu ekki vera lengur "til almannaheilla". Bakri, sem er með líbanskan og sýrlenskan ríkisborgararétt, hefur búið í Bretlandi síðustu tuttugu árin. Hann hefur lengi sætt ámæli fyrir öfgafull viðhorf sín og eftir sprengjuárásirnar í Lundúnum í síðasta mánuði hvatti hann trúbræður sína til þess að gefa ekki upplýsingar sem gagnast gætu lögreglu. Í kjölfarið sá hann sér þann kost vænstan að halda til Líbanon en nú hefur breska innanríkisráðuneytið hins vegar tilkynnt honum að hann fái ekki að snúa aftur. Afar fátítt er að erlendum ríkisborgara sem hefur búið svo lengi í Bretlandi sé meinað að koma aftur inn í landið eftir dvöl erlendis. Anjem Choudary, félagi Bakri, segir hann hlíta ákvörðuninni en eftir sem áður myndi hann láta rödd sína heyrast í Bretlandi sem annars staðar. Talsmenn hófsamari múslima í Bretlandi lýstu yfir ánægju sinni með að Bakri fengi ekki að snúa aftur og sögðu hann hafa svert ímynd þeirra. Í fyrradag handtók breska lögreglan annan klerk, Jórdanann Abu Qatada, við níunda mann en þeir eru taldir ógna öryggi landsins.
Erlent Fréttir Mest lesið Kamilla Bretadrottning greinir frá kynferðisofbeldi Erlent Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Innlent Eitthvað í íslensku samfélagi fjandsamlegt börnunum okkar Innlent Segir myndbandsupptöku af því þegar skórnir voru teknir Innlent Simmi vinsælasti leynigesturinn Innlent „Margir sem því miður eru ekki jafn heppnir og ég“ Innlent Gleðilegt nýtt ár kæru lesendur Vísis Innlent Gummi lögga er maður ársins 2025 Innlent „Þetta er Íslandsmet, Íslandsmet í svikum“ Innlent Dótturdóttir JFK er látin Erlent Fleiri fréttir Kamilla Bretadrottning greinir frá kynferðisofbeldi Dótturdóttir JFK er látin Handtóku 357 meinta ISIS-liða í kjölfar mannskæðra átaka „Sannur Finni“ fær hæli í Rússlandi Sífellt fleiri hermenn falla á ári hverju Hvetur ESB til að svara refsiaðgerðunum Bandaríkjanna fullum hálsi Þrítugasta árásin á bát meintra smyglara TikTok-áskorun leiddi til banafalls af útvarpsmastri Blóðbaðið í El Fasher: Milljón manna borg orðin að „draugabæ“ Neita að ræða við Úkraínumenn vegna meintrar árásar á heimili Pútíns Sádar sprengja hergögn frá furstadæmunum í Jemen og hóta frekari árásum Á lista yfir þrjú hlýjustu ár í mælingasögunni Selenskí sver af sér drónaárás á heimili Pútíns Bandaríkin leggja til tvo milljarða dala með skilyrðum Trump hótar skelfilegum afleiðingum afvopnist Hamas ekki Neita að tjá sig um ummæli Trumps um árás í Venesúela Kim ánægður með nýjar stýriflaugar Þrír lögregluþjónar og sex ISIS-liðar fallnir eftir átök í Tyrklandi Vill lengri tryggingar og tilbúinn til að hitta Pútín Frímúrarareglan vill lögbann á nýjar lögreglureglur Milljón dalir eða meira fyrir náðun Umkringdu Taívan og æfðu lokanir hafna „Markmið mitt var bara að ná byssunni af honum“ Minnst einn látinn eftir að tvær þyrlur rákust saman í loftinu Trump telur friðarsamkomulag mögulegt innan nokkurra vikna „Þetta er ansi flókið, en þó ekki svo flókið“ Átti gott samtal við Pútín Skildu farþega eftir í fyrri ferð og strönduðu í annarri Í deilum við nágrannann vegna trjáa Mesti snjór í New York í fjögur ár Sjá meira