Hvenær er best að gifta sig? 2. júlí 2005 00:01
Það er best að gifta sig 31. júlí, 3. ágúst eða 14. ágúst. Að sama skapi er 10. júlí afleitur dagur til veisluhalda. Það er algengast að fólk láti pússa sig saman um miðjan dag að sumarlagi. Veðurstofan hefur nú gert úttekt á veðrinu einstaka daga að sumarlagi klukkan þrjú eftir hádegi, allt frá árinu 1949, svo að fólk viti nú hvað sagan segir um líkur á góðu veðri á stóra daginn. Góðviðri hefur oftast komið fyrir 14. ágúst á umræddu tímabili. Góðviðri er skilgreint sem minnst ellefu stiga hiti, minna en fimm metrar á sekúndu og ekki má hafa rignt í þrjár klukkustundir. Ef 14. ágúst hentar ekki til brúðkaups er líklega best að veðja á 31. júlí eða 3. ágúst sem eru næstbestu dagarnir. Það er þó ekki nema að jafnaði um fimmta til sjötta hvert ár sem svo vel viðrar á þessum dögum. Það er samt hátíð miðað við 1., 4. og 16. júní en þótt ótrúlegt megi virðast hafa slíkir góðviðrisdagar hreinlega aldrei orðið á þessum dögum undanfarin 55 ár og því líklega best að halda sig bara heima við þessa daga og nota aðra daga til þess að ganga upp að altarinu. Þessir dagar eru samt betri en 10. júlí og 22. ágúst ef það er aðallega rigningin sem menn vilja forðast. Rigning eða súld um miðjan daginn að sumri hefur undanfarin 55 ár verið tíðust þann 10. júlí og ef lagðir eru saman dagar með skúraleiðingum og rigningu eða súld kemur 22. ágúst verst út því að þann dag eru meira en helmingslíkur á úrkomu um miðjan daginn í höfuðborginni eða næsta nágrenni hennar.
Fréttir Innlent Mest lesið Davos-vaktin: „Við fengum allt sem við vildum“ Erlent Halla slær á putta handboltahetjunnar Innlent Samkomulagið veiti Bandaríkjunum aðgang að auðlindum Grænlands Erlent „Ég á þetta og má þetta“ Innlent Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Innlent Viðurkenni nú að hafa beitt Íslendinga efnahagslegri hernaðaraðgerð Innlent „Ég framkvæmdi þetta af algjörri nauðsyn“ Innlent Sex sagt upp í menntamálaráðuneytinu Innlent „Ramma framtíðarsamkomulags“ náð um Grænland og hætt við tolla Erlent Óvæntur blaðamannafundur: Las „afrekabókina“ og sýndi myndir af glæpamönnum Erlent Fleiri fréttir „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Pétur vill leiða Viðreisn í Kópavogi Kom ekki á teppið Landsvirkjun hyggst bjóða út alla verkþætti Hvammsvirkjunar í ár Lilja sækist eftir því að leiða Framsókn Willum fer ekki fram og styður Lilju Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Magnea vill hækka sig um sæti Vissu ekki af kynferðisbrotinu fyrr en lögreglan hafði samband Fengið svör frá Bandaríkjunum um Íslandsyfirlýsingar Trumps Laugarnestangi friðlýstur sem menningarlandslag Mesti fjöldi í sögu bráðamóttökunnar Leita manns vegna kynferðisbrots við Austurbæjarbíó Sósíalistar sendu nær allar tekjur í félög tengdum fyrri stjórn Mætast í Pallborðinu á lokasprettinum Kafað í óbirta og umtalaða skýrslu um Félagsbústaði Rannsóknaskipin gera hlé á loðnuleit vegna óveðurs Viðreisn býður fram undir merkjum Samfylkingar Þrjú erlend her- og varðskip í Reykjavík Ósammála um hvort lögregla hafi gefið fyrirmæli „Ég á þetta og má þetta“ „Það er ekki hægt að muna allan þennan djöful“ Nauðgaði konu og reyndi að færa henni blóm daginn eftir Hvalveiðimótmælin fyrir dóm og Danir segja ekkert samið um Grænland Húsleit fór fram víðar en á Akureyri Halla slær á putta handboltahetjunnar „Ég framkvæmdi þetta af algjörri nauðsyn“ „Sama hvað gerist þá sigra hvalirnir“ Ósammála um hvort Heiða sé „atvinnupólitíkus“ Sjá meira