Ríta nálgast óðum 23. september 2005 00:01
Fellibylurinn Ríta er í þann mund að skella á ströndum Texas og Louisiana. Hann virðist á góðri leið með að verða jafn kröftugur og jafnvel kröftugri en Katrín sem reið yfir Suðurríkin fyrir innan við mánuði með hörmulegum afleiðingum. Milljónir manna hafa yfirgefið heimili sín en enn er ekki ljóst nákvæmlega hvaða leið Ríta muni fara og hvar hún muni valda mestum skaða. Ingólfur Bjarni Sigfússon, fréttamaður Stöðvar 2, er í Houston í Texas. Hann segist finna fyrir því sem er í vændum, hitastigið hækkar t.d. sífellt og er komið upp 38 stig og vindurinn er alltaf að aukast. Borgin er orðin hálfgerð draugaborg, nánast enginn sést á ferli og hvorki heyrist í hundum né fuglum. Tvær milljónir manna hafa þegar yfirgefið Houston, stór hluti þeirra þó fastur í umferðarteppu skammt frá borginni, og hálf milljón til viðbótar er í neyðarskýlum í nágrenninu með nægar matar- og vatnsbirgðir. Viðbrögð fólks eru merkilega yfirveguð þó greina megi alveg spennuna. Ástandið á hraðbratunum frá Houston í nótt og í dag var „bíll við bíl“ og engin hreyfing. Fjöldi bíla varð bensínlaus á leiðinni og bensínstöðvar urðu reyndar einnig uppiskroppa með bensín. Þjóðvarðliðið var sent með olíubíla á staðinn en fólk vantar eftir sem áður mat og drykk í hitanum. Ríkisstjórinn Rick Perry lét það ekki stöðva sig og hvatti fólk til þess að reyna að koma sér burt fram eftir degi. Fyrstu fórnarlömb Rítu fórust á flótta í dag. Rúta sem flutti ellilífeyrisfarþega til Dallas sprakk; fólkið var margt hvert með súrefnistanka með sér og talið er að í kjölfar vélarbilunar hafi þeir sprungið. Þó að Ríta láti til sín taka í Galveston og Houston er ástandið einna verst í New Orleans. Þar rigndi mikið í dag, rokið var talsvert og yfirborð vatns hækkaði mikið með þeim afleiðingum að flóðgarðar brustu á ný. Götur sem búið var að þurrka eru því aftur á floti. Ef öflugri hlið Rítu fer yfir New Orleans í nótt gætu afleiðingarnar orðið skelfilegar. Búist er við að Ríta gangi á land í Houston á milli 5 og 8 í fyrramálið.
Erlent Fréttir Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Fleiri fréttir Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Sjá meira