Íbúar Texas flýja 23. september 2005 00:01
Bílaröð sem er nærri jafnlöng og allur vegkaflinn milli Reykjavíkur og Stykkishólms hefur myndast utan við Houston, þar sem fólk flýr fellibylinn Rítu. Algjör ringulreið ríkir, enda hreyfist röðin nánast ekkert. Bensínið í nágrenni borgarinnar er á þrotum og margir hafa skilið bensínlausa bíla sína eftir og tekið til fótanna. Þrátt fyrir þetta er fólk hvatt til að fara burt úr borginni, og leitað hefur verið aðstoðar hersins við að koma bensíni á svæðið.Takist ekki að leysa úr málum hið snarasta er hætt við að þúsundir manna verði enn fastir á hraðbrautum þegar Ríta geysist yfir svæðið og þar með í bráðri lífshættu. Á þriðju milljón manna hefur þegar yfirgefið heimili sín á Texas-svæðinu, þar sem búist er við Rítu seint í kvöld. Það er þó enn mögulegt að Texas sleppi að mestu, því stefna Rítu hefur breyst lítillega. Aðeins hefur dregið úr krafti hennar og er hún nú orðinn fjórða stigs fellibylur, en var í gær fimmta stigs bylur. Hún á þó enn eftir að fara yfir mjög hlýjan sjó og sérfræðingar telja mögulegt að kraftur hennar gæti við það aukist aftur. Rita er þegar farin að draga úr hagvaxtarspám vestanhafs, í kjölfar hrakspánna vegna Katrínar. Jafnframt er spáð aukini verðbólgu eitthvað í átt við það sem varð á áttunda áratugnum, meðal annars vegna hækkandi olíuverðs. Áhrifin munu ná víðar um heiminn þar sem bandaríska hagkerfið er hið lang stærsta í heiminum. Reyndar er þegar farið að gæta vaxandi verðbólguþrýstings í Evrópu, og minnkandi hagvaxtar víðast hvar á Evru svæðinu, en sú þróun var byrjuð áður en fellibyljirnir komu til sögunnar.
Erlent Fréttir Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Fleiri fréttir Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september Sjá meira