Hvít-Rússar á atkvæðaveiðum 25. apríl 2005 00:01
Það er ekkert til sparað við að kynna framlag Hvíta-Rússlands til Evrópusöngvakeppninnar í ár. Söngkonan Angelica er á ferð um Evrópu í einkaþotu ásamt fríðu föruneyti og kynnti hún lagið sitt á Nasa við Austurvöll í dag. Hún hitti Selmu og segir íslenska lagið mjög gott. Það hefði mátt halda að forseti Hvíta-Rússlands væri kominn til Íslands frekar en söngkonan Angelica Agurbash, sem er fulltrúi landsins í Evróvisjón í ár. Slíkt var tilstandið í kringum hana, Benzarnir í röðum og öryggisgæsla talsverð. Angelica er 34 ára, gift þriggja barna móðir sem býr í Moskvu í Rússlandi. Hún ólst upp við mikla fátækt en er nú stórstjarna í heimalandi sínu, Hvíta-Rússlandi, og hefur komið fram sem bæði söngkona, dansari og leikkona. Hún kom ásamt fríðu föruneyti með einkaþotu til Íslands og kynnti famlag Hvít-Rússa, Love Me Tonight, á Nasa, en Ísland er 17. viðkomustaðurinn af 24 í umfangsmikilli Evrópukynningu á laginu. Ferðalagið kostar milljónir króna og segir söngkonan móttökurnar hafa verið frábærar. Hún segir kynninguna mikilvæga fyrir Evróvisjónkeppnina og þá þykir henni einnig mikilvægt að kynna sjálfa sig og eignast nýja vini í Evrópu. Angelica segir ferðalagið að undanförnu hafa tekið á enda heimsæki hópurinn nýtt land nánast á hverjum degi. Hún segist hlakka mikið til þess að syngja í Kænugarði í Úkraínu í næsta mánuði. Söngkonan snæddi hádegisverð með Selmu, fulltrúa Íslands í Kænugarði, og segir þær orðnar ágætisvinkonur. En hvað finnst henni um íslenska lagið? Angelica segir það góðan valkost. Hún viti að Selma hafi tekið þátt í Evróvisjón árið 1999 og þá náð öðru sæti sem sé frábær árangur. Þær hafi hist í dag og Selma sé frábær kona og hún kunni mjög vel við hana og lagið hennar og hún óski henni og þjóðinni góðs gengis í Kænugarði. Með komu sinni til Íslands fetar Angelica í fótspor hinnar úkraínsku Ruslönu sem kom til Íslands í fyrra og sigraði síðan í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Hvort Angelica verður jafnheppin og hún kemur í ljós í Kænugarði 21. maí næstkomandi.
Menning Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Sjá meira