Leynifangelsi verða könnuð 1. desember 2005 06:30 Franco Frattini. ESB hótar að svipta þau ríki sem heimilað hafa rekstur leynifangelsa atkvæðisrétti.
Þótt Bandaríkjastjórn hafi ekki enn viðurkennt að hún starfræki leynileg fangelsi erlendis þar sem grunaðir hryðjuverkamenn eru geymdir segist hún hafa meðtekið þau hörðu viðbrögð sem málið hefur vakið. "Ríkisstjórn Bandaríkjanna hefur ekki brotið landslög með aðgerðum sínum. Þær eru allar í samræmi við stjórnarskrána og við förum eftir þeim alþjóðaskuldbindingum sem við eigum aðild að," segir Sean McCormack, formælandi utanríkisráðuneytisins. Ásakanir um að bandaríska leyniþjónustan CIA reki leynifangelsi í Evrópu hafa orðið til þess að fjölmörg lönd hafa kallað eftir skýringum. Evrópusambandið hefur sömuleiðis krafist útskýringa á málinu og hótaði Franco Frattini, yfirmaður dóms- og löggæslumála í framkvæmdastjórn þess, í vikunni að þau aðildarríki sem uppvís hefðu orðið að því að heimila rekstur slíkra stofnana yrðu svipt atkvæðisrétti í stofnunum ESB. CIA hefur ekkert tjáð sig um málið og hvorki Hvíta húsið né utanríkisráðuneytið hafa staðfest sannleiksgildi ásakananna. Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, mun í næstu viku hitta Frank-Walter Steinmeier, þýskan starfsbróður sinn, og er búist við að fangelsin verði þar ofarlega á baugi. "Við gerum okkur grein fyrir að við þessu verður að bregðast og Evrópusambandið mun fá svör," bætti McCormack við.
Erlent Mest lesið Kosningavaktin: Sjálfstæðisflokkurinn fagnaði um allt land Innlent Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Innlent Hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar endanlega búnir Innlent Lokatölur í Reykjavík: Sjálfstæðisflokkurinn nær níunda manni inn Innlent Áfellisdómur fyrir ríkisstjórnina Innlent Hildur með pálmann í höndunum Innlent „Hvað sagðiru, 42? Það er geðveikt!“ Innlent Ingibjörg Sólrún biður Guðmund Árna afsökunar Innlent Stefán Pálsson og Vinstrið sleikja sárin Innlent Bein útsending: Kosningaveisla á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Streeting vill formannsstólinn og aftur inn í Evrópusambandið Bíl ekið á hóp manna í Modena Felldu næstæðsta ISIS-liða heims: „Hélt að hann gæti falið sig í Afríku“ Skoða að gefa bandamönnum Trumps tvö hundruð milljarða Stefnir í enn ein réttarhöldin gegn Weinstein Nýr ebólufaraldur í Austur-Kongó Trump um Xi og Taívan: „Hann vill ekki sjá baráttu um sjálfstæði“ Engir flökkudrónar fundist í Finnlandi Fólki sagt að halda sig inni vegna óþekkts dróna við Helsinki Segir fimm milljóna punda gjöf „verðlaun“ fyrir Brexit Saka tóbaksfyrirtæki um að halda nikótínpúðum að börnum Hrópuðu „megi þorp ykkar brenna“ og „Gasa er grafreitur“ Streeting segir af sér úr ríkisstjórn Starmer Varaði Trump við átökum vegna Taívan Sakfellingu Murdaughs snúið við og stefnir í ný réttarhöld Úkraínskir drónaflugmenn „rústuðu“ Svíum Hafa lofað Pútín að ná Donbas í sumar Streeting sagður munu skora Starmer á hólm í vikunni Trump fer til Kína: „Við erum tvö stórveldi“ Skaut á bíla af handahófi með riffli PCOS verður PMOS: Fjölblöðrueggjastokkaheilkenni ei meir Frakki lífshættulega veikur af hantaveirunni Skuggaskip sem sökk bar mögulega kjarnakljúfa handa Kim Hafa gert leynilegar árásir í Íran Allir farþegar farnir frá borði og skipinu siglt til Hollands Barnaníðingur frá Ungverjalandi handtekinn á Tenerife Enn eykst þrýstingur á Starmer Fulltrúar Bandaríkjanna og Danmerkur ræða þrjár nýjar herstöðvar á Grænlandi Skaut tvo til bana og særði sex með Kalishnikov-riffli Vopnahléið í öndunarvél eftir „rusl“ svar klerkastjórnarinnar Sjá meira