Reynir að taka af tvímæli um stefnuna 8. desember 2005 06:45 Rice í Úkraínu. Ásakanir um vafasöm vinnubrögð CIA eltu bandaríska utanríkisráðherrann áfram á Evrópuför hennar í gær.
Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, reyndi í gær að taka af öll tvímæli um stefnu Bandaríkjastjórnar hvað varðar harkalegar aðferðir við yfirheyrslu. Lýsti hún því yfir að enginn starfsmaður bandarískra stofnana mætti beita fólk niðurlægjandi meðferð, hvort sem væri í eigin landi eða erlendis. Ummæli Rice, sem hún lét falla í opinberri heimsókn sinni í Úkraínu, komu í kjölfar misvísandi upplýsinga í Bandaríkjunum um það hvort liðsmenn leyniþjónustunnar CIA hefðu heimild til að beita aðferðum sem starfsmönnum annarra bandarískra stofnana, svo sem hersins, væri óheimilt. Ummælin fylgja líka í kjölfar djúpstæðrar og viðvarandi gagnrýni frá bandamönnum Bandaríkjanna í Evrópu á yfirheyrsluaðferðir svo sem "vatnsbrettið", þar sem fangar eru reyrðir við trébretti og dýft í vatn. Rice sagði að það væri þáttur í stefnu Bandaríkjastjórnar að sáttmáli Sameinuðu þjóðanna gegn pyntingum "gildi um bandaríska liðsmenn hvar sem þeir eru, hvort sem það er í Bandaríkjunum eða utan þeirra". SÞ-sáttmálinn bannar líka aðferðir sem ekki uppfylla strangt til tekið hina lögfræðilegu skilgreiningu á pyntingum, þar á meðal aðferðir sem mannréttindasamtök hafa sakað bandarísk yfirvöld um að beita kerfisbundið í fangabúðunum í herstöð Bandaríkjahers í Guantanamo á Kúbu. Talsmenn Bandaríkjastjórnar hafa áður sagt að bannið við harðneskjulegri, ómannúðlegri og niðurlægjandi meðferð fanga gildi ekki um Bandaríkjamenn að störfum utan Bandaríkjanna. Í framkvæmd þýddi þetta að liðsmenn CIA hefðu heimild til að beita aðferðum í fangelsum á erlendri grund sem þeim væri óheimilt heima fyrir. Þrátt fyrir þetta ósamræmi sagði Scott McClellan í gær að sú stefna sem utanríkisráðherrann lýsti væri gildandi stefna stjórnarinnar.
Erlent Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fleiri fréttir Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Sjá meira