Blóði drifin helgin að baki 17. júlí 2005 00:01
Upplausnarástand virðist ríkja í Írak og ekki verður séð að hernámsliðið hafi nokkra stjórn á landinu. Í það minnsta 170 manns hafa týnt lífi í sjálfsmorðssprengjuárásum undanfarna viku. Á meðan búa landsmenn sig undir að draga Saddam Hussein fyrir dóm en það vekur jafnframt ótta um að enn frekari átök blossi upp. Í gær bönuðu sjálfsmorðsprengjumenn 22 í fjölmörgum árásum í höfuðborginni Bagdad og nágrenni hennar. Ein sprengjan sprakk á skrifstofum þar sem kosningar haustsins eru undirbúnar og þar fórust sex manns. Al-Kaída í Írak birti strax yfirlýsingu þar sem samtökin lýstu ábyrgð á hendur sér þar sem kosningarnar "væru ekki í samræmi við vilja Guðs." Í annarri árás hentu uppreisnarmenn tveimur líkum á götu og skutu síðan lögreglumenn sem huguðu að líkunum. Mannskæðasta árás helgarinnar var hins vegar gerð við sjíamosku í bænum Musayyib, skammt suður af Bagdad. Þar kveikti sjálfsmorðssprengjumaður á vítisvél sinni nærri olíubíl sem sprakk í loft upp með þeim afleiðingum að í það minnsta níutíu manns dóu og 150 slösuðust. Al-Kaída hefur einnig sagst bera ábyrgð á þeirri árás. Aðeins ein hryðjuverkaárás hefur kostað fleiri mannslíf síðan Saddam Hussein var hrakinn frá völdum vorið 2003, hún var framin í bænum Hillah í febrúarlok en þá biðu 125 manns bana. Yfir 170 manns hafa fallið fyrir hendi hryðjuverkamanna í Írak undanfarna viku og er skemmst að minnast ódæðisins á miðvikudag þegar 26 börn voru myrt með sprengju. Svo virðist sem uppreisnarmenn séu að breyta um aðferðir því flestar gagnaðgerðir lögreglu eru miðaðar við bílsprengjuárásir en ekki fótgangandi sprengjumenn. Dómari við dómstólinn sem fjallar um afbrot Saddams Hussein greindi frá því í gær að einræðisherrann fyrrverandi verði ákærður fyrir fjöldamorð á 150 sjíum árið 1982. Þetta verða fyrstu formlegu ákærurnar sem Saddam eru birtar og verði hann fundinn sekur gæti hann verið dæmdur til dauða. Óttast er að réttarhöldin muni reita stuðningsmenn Saddams enn frekar til reiði með þeim afleiðingum að hryðjuverk færðust enn í aukana.
Erlent Fréttir Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Sjá meira