Erlent

Mannskætt flugslys í Afríku

Rússnesk flugvél hrapaði í frumskógum Miðbaugs-Gíneu í gær og létust allir sem voru um borð. Alls voru fleiri en 50 farþegar og áhafnarmeðlimir í vélinni. Vélin hrapaði um 30 kílómetrum suður af höfuðborginni, Malabo, skömmu eftir flugtak í gær. Lík fórnarlamba slyssins dreifðust um frumskóginn og óttast björgunarmenn að ekki muni takast að finna lík allra. Sökum ófulkominna flugskýrslna er ekki vitað upp á hár hversu margir voru í vélinni, sem sennilega hefði aldrei verið hleypt á loft á Vesturlöndum, enda gamalt hrak frá kaldastríðsárunum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×