Erlent

Hundruð hafa flúið heimili sín

Tæplega þriggja metra háar öldur hafa skollið á Jamaíka og eyðilagt tugi húsa. Hundruð hafa flúið heimili sín vegna fellibylsins Emily og gista nú þúsundir í athvörfum. Ekki hefur verið tilkynnt um mannfall en fjölmörg heimili hafa eyðilagst í fellibylnum. Fellibylurinn Emily fór um á 250 kílómetra á klukkustund og mynduðust allt að þriggja metra háar öldur sem skullu á eyjunni í nótt. Miklar rigningar urðu í kjölfarið og hefur hætta á flóðum aukist mjög. Líklegt þykir að Emily sé nú á leið að eyjunni Cayman og hafa hundruð manna þar einnig flúið heimili sín. Sett hafa verið upp skýli fyrir allt að fjögur þúsund manns og hefur útgöngubann verið komið á. Fellibylir eru tíðir í Karabíska hafinu



Fleiri fréttir

Sjá meira


×