Snjónum kyngir niður í Evrópu 30. desember 2005 17:57 MYND/REUTERS
Jólasnjónum beinlínis kyngir niður um alla Evrópu, á sama tíma og auð jörð ræður ríkjum í flestum landshlutum hér á fróni. Það er sama hvert litið er v estur, a ustur og jafnvel suður , alls staðar eru veðurguðirnir í sannkölluðu jólaskapi og ekkert lát er á snjódrífunni. Stór hluti austur Evrópu er þakinn sjnó og í Búlgaríu, Króatíu og Póllandi liggja almenningssamgöngur víða niðri vegna mikilla snjóalaga og margir hafa þurft að ganga til vinnu í dag, og þeir uppátækjasömustu tóku jafnvel fram gönguskíðin í morgunsárið. Víðast hvar er fimbulkuldi og hefur hitastigið farið allt niður í fjörutíu gráðu frost í austur Evrópu í dag. En þó að flestir taki snjónum vel og klæði sig með viðeigandi hætti, hefur fannfergið líka sínar dökku hliðar. Í Ungverjalandi lést átta ára gamall drengur og tíu slösuðust í sextíu bíla árekstri í morgun. Um leið og hraðbrautin var opnuð eftir að tekist hafði að koma bílunum í burtu varð svo annar árekstur og aftur þurfti að loka brautinni. Sömu sögu er að segja í fleiri löndum og í Slóavkíu varð líka sextíu bíla árekstur í dag. Um alla Evrópu hefur verið miklu meira um bílslys undanfarna daga en að jafnaði á þessum árstíma. Sem betur fer hefur tjón þó í flestum tilvikum bara orðið á farartækjum, en ekki mönnum. En í löndum þar sem alla jafna er heitara hefur nístingskuldinn hreinlega dregið fólk til dauða. Í Rómarborg hafa nokkrir heimilislausir fátæklingar fundist látnir í dag og í Flórens og Napolí hafa nokkrir komið á sjúkrahús illa kalnir, enda frostið nærri þrjátíu gráður. Á stórum svæðum í Hollandi, Frakklandi og Bretlandi hefur verið stanslaus snjókoma og hríð nær alla vikuna og yfirvöld hvetja fólk enn til að láta bílana eiga sig, enda fæstir búnir undir vetrarfærðina sem jafnast víða fyllilega á við fannhvítar heiðar Vestfjarða á snjóþungum vetri. En á sama tíma og meginland Evrópu minnir á eitt stórt snjóhús, ræður auð jörð ríkjum á Íslandi og tíminn fer að verða knappur fyrir jólasnjóinn, enda aðeins sjö dagar í að jólunum ljúki formlega.
Erlent Fréttir Mest lesið Úlfar hættir sem lögreglustjóri Innlent Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Innlent Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Innlent Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Innlent Dr. Bjarni er látinn Innlent Geyma fjöldann allan af fullum bensínkútum í bíl í Hlíðunum Innlent Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Innlent „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Innlent Þakkantinum var haldið saman með kústskafti Innlent Lýsa martraðakenndri leigubílaferð upp í Bláfjöll Innlent Fleiri fréttir Tveir frambjóðendur myrtir á nokkrum dögum Hóta að standa í vegi „fallegs“ frumvarps Mætir ræningjunum í fyrsta sinn Segja ekki hvort Pútín ætli að hitta Selenskí Sakfelldur fyrir að hafa beitt konur kynferðisofbeldi Staðfesta ábyrgð Rússa á því að malasíska þotan var skotin niður Trump með verri ímynd á heimsvísu en Xi og Pútín Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Málverk af Grænlandi undir stjórn Trumps vekur athygli „Táknrænt sterk“ forysta Grænlands hefst í dag Bandaríkjaforseti vill þiggja lúxusþotu frá Katar að „gjöf“ Sakar Rússa um að hafa brennt stærstu verslunarmiðstöð Póllands Leysa upp samtökin og leggja niður vopn Vopnahlé hélt í nótt og viðræðum fram haldið Láta bandarískan gísl lausan Mun bíða Pútíns í Tyrklandi á fimmtudag Vilja leggja réttarríkið til hliðar „Mikilvæg skref“ en allt velti á því hvort Pútín sé í stuði fyrir frið Vopnahléið heldur en vígahugur ríkir enn Hafnar aftur almennu vopnahléi og leggur til viðræður Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Skammvinnu vopnahléi virðist lokið Pirraður yfir því hvað friður er langt utan seilingar Sovéskt geimfar hrapaði til jarðar eftir misheppnað ferðalag til Venus Fundu mögulega eitt af 67 fórnarlömbum hálfri öld síðar Kínverskir verktakar fá ekki að bora skipagöng í Noregi Vopnahlé í höfn milli Indlands og Pakistans Kim lofar hermenn sína sem börðust í Kúrsk sem hetjur Átökin ná nýjum hæðum Borgarstjóri í Bandaríkjunum handtekinn vegna mótmæla Sjá meira