Alvarleg mistök gerð í Beslan í fyrra 28. desember 2005 18:45 Frá aðgerðum hersins í Norður-Ossetíu í fyrra. MYND/AP
Lögreglu- og sérsveitarmenn gerðu mörg alvarleg mistök þegar meira en þrjú hundruð gíslar týndu lífi í Beslan í september í fyrra. Þetta er niðurstaða rannsóknarnefndar rússneska þingsins vegna málsins. Beslan í byrjun september 2004 . F yrsti skóladagurinn breyttist í martröð þegar tjetjenskir uppreisnarmenn tóku meira en ellefu hundruð börn og kennara í gíslingu. Eftir þriggja daga umsátursástand réðust rússneskar sérsveitir inn í skólann og þrjú hundruð þrjátíu og einn týndi lífi, meirihlutinn börn. Rússneska þingið skipaði skömmu síðar rannsóknarnefnd vegna málsins og hún skilaði í dag skýrslu. Niðurstaðan er afdráttarlaus. Formaður nefndarinnar segir að rannsóknin hafi leitt í ljós að aðgerðir yfirvalda til varnar hryðjuverkum séu ekki fullnægjandi og að lögregla í Ingúsetíu og Norður-Ossetíu hafi sýnt af sér vanrækslu og óvarkárni við umsátrið í Beslan. Auk þess að fara rangt að þegar ráðist var inn í skólann telur þingnefndin að lögregluyfirvöld í Beslan hafi sýnt vítavert kæruleysi með því að hafa ekki betri öryggisgæslu við skólann á fyrsta degi septembermánaðar. Aðeins fáeinum dögum áður hafi innanríkisráðuneyti landsins sent símskeyti þar sem farið var fram á að öryggisgæsla yrði hert við alla skóla. Daginn sem hörmungarnar dundu yfir var einn lögreglumaður á vakt við grunnskólann í Beslan og hann var líka tekinn í gílsingu. Enginn verður þó dreginn til ábyrgðar enn um sinn, því enn á eftir að rannsaka málið frekar og öll kurl verða ekki komin til grafar fyrr en á nýju ári.
Erlent Fréttir Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Sjá meira