Hafa engan rétt á aðgerðum á Gaza 28. desember 2005 15:24 Mahmoud Abbas á fundi með samstarfsmönnum sínum. MYND/AP
Ísraelar hafa engan rétt á að grípa til aðgerða á Gaza eftir brotthvarf þeirra þaðan segir Mahmoud Abbas, forseti palestínsku heimastjórnarinnar. Hann segir flugskeytaárásir palestínskra vígamanna á Ísrael af Gaza engu breyta um það. Palestínskir vígamenn hafa nýtt sér brotthvarf Ísraela frá Gaza til að skjóta flugskeytum á byggðir í Ísrael sem voru áður utan skotfæris þeirra. Ísraelar hafa brugðist illa við þessu og gert loftárásir á Gazasvæðinu auk þess sem dreifimiðum hefur verið varpað úr ísraelskum flugvélum þar sem Palestínumenn eru varaðir við að vera á ferli nyrst á Gazaströndinni. Á blaðamannafundi í dag hvatti Mahmoud Abbas, forseti palestínsku heimastjórnarinnar, vígamenn til að hætta árásum á Ísrael svo Ísraelar fengju ekki ástæðu til að leggja Gaza aftur undir sig. Abbas sagði augljóst að Ísraelar hefðu yfirgefið Gaza og hefðu engan rétt á að snúa þangað aftur. Ísraelar mættu heldur ekki grípa til nokkurra aðgerða þar, sama hver réttlæting þeirra væri, svo sem eldflugaárásir sem Abbas sagðist fordæma fyrirvaralaust. Hann bað vígamenn að hætta árásum sínum og gefa Ísraelum engar afsakanir fyrir árásum á Gaza. Forsetinn sagðist fordæma hvaða aðgerð Palestínumanna sem gæti haft í för með sér að Ísraelar hernæmu Gaza á ný. Hann sagðist hafa séð og heyrt í eldflaugum og herþotum Ísraela síðustu nótt og kvað það gjörsamlega óásættanlegt. Ísraelar hefðu yfirgefið Gaza og ættu að halda sig fjarri því.
Erlent Fréttir Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Sjá meira