Algjör ringulreið 21. desember 2005 12:05
Algjör ringulreið ríkir í New York borg vegna allsherjarverkfalls starfsmanna samgöngukerfis borgarinnar. Milljónir manna þurfa líklega að ganga borgina þvera og endilanga í nístingskulda annan daginn í röð til að komast í vinnuna. Starfsfólkið sem er í verkfalli gæti átt yfir höfði sér fangelsisdóma, þar sem verkfallið er ólöglegt. Enn hefur ekki náðst samkomulag við starfsmenn almennings samgöngukerfisins í borginni sem hófu verkfall í gær. Allt útlit er fyrir að annan daginn í röð liggi allar almenningssamgöngur í New York niðri. Eins og þessar myndir bera með sér voru götur víða troðfullar af fólki á annatímum í gær, enda notast að jafnaði sjö milljónir manna við lestar og strætisvagna á hverjum degi í New York. Þetta fólk gekk eða notaði reiðhjól í gær. Leigubílar voru óvenju þétt setnir í borginni, enda eflaust margir vinnu- og skólafélagar ákveðið að skjóta saman í einn gulann. Þá mátti víða sjá miklar biðraðir við lestarstöðvar, og margir virtust hreinlega ekki hafa trúað því að verkfallið væri í raun og veru skollið á. Við Pensylvaníu lestarstöðina söfnuðust þúsundir manna saman í lok vinnudags, en engar komu lestarnar. Flestir ferðuðust þó á tveimur jafnfljótum og borgarstjórinn Michael Bloomberg sýndi íbúum borgarinnar samstöðu og ákvað að ganga í vinnuna. Í lok vinnudags mynduðust svo margra kílómetra langar bílaraðir við borgarmörkin og íbúar úthverfanna voru fleiri klukkustundir á leiðinni heim til sín. Samkvæmt lögum í New York mega opinberir starfsmenn ekki fara í verkfall og dómstóll í New York dæmdi í gær verkalýðsfélagið sem stendur fyrir verkfallinu til að greiða eina milljón dollara á hverjum degi sem verkfallið stendur. Þá missa starfsmenn tveggja daga laun fyrir hvern dag sem verkfallið stendur samkvæmt úrskurði dómstólsins. Ef verkfallið dregst á langinn gætu starfsmenn hreinlega átt yfir höfði sér fangelsisdóma.
Erlent Fréttir Mest lesið Segjast hafa skotið niður indverskar herþotur Erlent Moskítóflugur muni koma til Íslands Innlent Vilja að ríkisstarfsmenn starfi til 73 ára aldurs Innlent Auka njósnir og eftirlit á Grænlandi Erlent Alþingi hafi mistekist að tryggja þjóðinni eðlilegan hlut Innlent Sex evrópskir utanríkisráðherrar skora á Ísrael Innlent Bein útsending: Páfakjör í Páfagarði Erlent Borin út úr Bríetartúni: „Það er búið að ræna mig öllu“ Innlent Misstu aðra herþotu í sjóinn Erlent Heimila hernum að hefna fyrir árásirnar í gær Erlent Fleiri fréttir Heimila hernum að hefna fyrir árásirnar í gær Bein útsending: Páfakjör í Páfagarði Herþota hrapaði til jarðar í Finnlandi Auka njósnir og eftirlit á Grænlandi Misstu aðra herþotu í sjóinn Segjast hafa skotið niður indverskar herþotur Indland gerir árás á Pakistan Trump um kaupin á Kanada: „Aldrei segja aldrei“ Merz náði kjöri í annarri tilraun Niðurlægjandi fyrir Merz og AfD krefst þingkosninga á ný Sakar Rússa um fordæmalaus afskipti af kosningum í Póllandi Kardinálarnir læstir inni á morgun Ríkisstjórn Rúmeníu liðast í sundur eftir sigur öfgahægrimanns Náði ekki kjöri í sögulegri atkvæðagreiðslu Fækkar herforingjum um fimmtung Lokuðu flugvöllum í Moskvu vegna dróna „Ástandið er að versna“ Íbúar Gasa verði fluttir á brott „í þágu eigin öryggis“ Páfabíll verður færanleg heilsugæsla fyrir börn á Gasa Aldrei fleiri stríð í heiminum síðan í síðari heimsstyrjöld Ráðherra segir að Ísraelar muni ekki fara aftur frá Gasa Árásarmaðurinn í Uppsölum handtekinn Komu naumlega í veg fyrir hryðjuverkaárás í Bretlandi Með bæði betri og fleiri vopn en síðast Ætla að hernema Gasaströndina Segir réttarríkið standa í vegi sínum Afstýrðu sprengjutilræði á tveggja milljóna manna tónleikum Lady Gaga Fjórtán börn handtekin eftir að drengur lést í eldsvoða Til marks um „skringilega“ skautun víða um heim Ekki nein þörf á notkun kjarnorkuvopna og vonar að svo verði ekki Sjá meira