Innlent

Neita að elta skottið á verðbólgunni

Að störfum í Nóatúni. Verslunarfólk gerir kjarasamning við Samtök atvinnulífsins. VR, eitt aðildafélag ASÍ, á eftir að ákveða hvort samningurinn verði endurskoðaður.
Að störfum í Nóatúni. Verslunarfólk gerir kjarasamning við Samtök atvinnulífsins. VR, eitt aðildafélag ASÍ, á eftir að ákveða hvort samningurinn verði endurskoðaður.

"Við erum tilbúin í svipuð viðbrögð og síðast þegar forsendur kjarasamninga brustu," segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins sem á í viðræðum við Alþýðusamband Íslands um kjarasamninga. Forsendur samninganna, sem gerðir voru í ársbyrjun 2004, eru brostnar vegna hærri verðbólgu en gert var ráð fyrir þegar samningar voru gerðir og varða allt að hundrað þúsund manns.

ASÍ hefur lagt fram tillögu um tveggja prósenta launahækkun, sem mæti aukinni verðbólgu, en Samtök atvinnulífsins höfnuðu því alfarið. Samningar aðila vinnumarkaðins sem gerðir voru síðast þegar forsendur voru brostnar voru upp á um eins prósents launahækkun í formi lífeyris­greiðslna og ­beinna­­ hækkana. Það var í desember 2001 vegna kjarasamninga sem endurskoða átti í febrúar 2002.

"Ljóst var í hvað stefndi því verðbólgan var komin í níu prósent. Þá ákváðu menn að trúa á það að verðbólgan myndi hjaðna aftur og mælast undir tilteknu gildi í maí og gerði ráð fyrir því að hún hækkaði lítið frá janúar og fram í maí," segir Ari. Vinnuveitendur voru skuldbundnir til að borga tvö prósent á móti tveimur í lífeyrissparnað og var tjónið vegna verðbólgunnar bætt með því að festa aðra séreigna­prósentu atvinnurekandans, óháð því hvort launamaðurinn væri að spara. "Þetta kostaði atvinnulífið um 0,6 prósent og launahækkunin 1. janúar 2003 varð 0,4 prósentum hærri en hún hefði annars orðið. Reyndar kom ríkið á móts við atvinnulífið með því að hafa hækkun tryggingagjalds 0,13 prósentum lægri en hún hefði annars verið," segir Ari.

"Þetta voru viðbrögðin við stöðu sem er að sumu leyti svipuð og nú er en að sumu leyti ólík, og reiknum við með því að unnið sé á svipuðum forsendum og þá. Við ætlum ekki að fara að elta skottið á verðbólgunni því það færir okkur 25 ár aftur í tímann. Ég trúi því ekki í raun að ASÍ sé að stefna þangað," segir hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×