Neita að elta skottið á verðbólgunni 8. nóvember 2005 06:00 Að störfum í Nóatúni. Verslunarfólk gerir kjarasamning við Samtök atvinnulífsins. VR, eitt aðildafélag ASÍ, á eftir að ákveða hvort samningurinn verði endurskoðaður. "
Við erum tilbúin í svipuð viðbrögð og síðast þegar forsendur kjarasamninga brustu," segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins sem á í viðræðum við Alþýðusamband Íslands um kjarasamninga. Forsendur samninganna, sem gerðir voru í ársbyrjun 2004, eru brostnar vegna hærri verðbólgu en gert var ráð fyrir þegar samningar voru gerðir og varða allt að hundrað þúsund manns. ASÍ hefur lagt fram tillögu um tveggja prósenta launahækkun, sem mæti aukinni verðbólgu, en Samtök atvinnulífsins höfnuðu því alfarið. Samningar aðila vinnumarkaðins sem gerðir voru síðast þegar forsendur voru brostnar voru upp á um eins prósents launahækkun í formi lífeyrisgreiðslna og beinna hækkana. Það var í desember 2001 vegna kjarasamninga sem endurskoða átti í febrúar 2002. "Ljóst var í hvað stefndi því verðbólgan var komin í níu prósent. Þá ákváðu menn að trúa á það að verðbólgan myndi hjaðna aftur og mælast undir tilteknu gildi í maí og gerði ráð fyrir því að hún hækkaði lítið frá janúar og fram í maí," segir Ari. Vinnuveitendur voru skuldbundnir til að borga tvö prósent á móti tveimur í lífeyrissparnað og var tjónið vegna verðbólgunnar bætt með því að festa aðra séreignaprósentu atvinnurekandans, óháð því hvort launamaðurinn væri að spara. "Þetta kostaði atvinnulífið um 0,6 prósent og launahækkunin 1. janúar 2003 varð 0,4 prósentum hærri en hún hefði annars orðið. Reyndar kom ríkið á móts við atvinnulífið með því að hafa hækkun tryggingagjalds 0,13 prósentum lægri en hún hefði annars verið," segir Ari. "Þetta voru viðbrögðin við stöðu sem er að sumu leyti svipuð og nú er en að sumu leyti ólík, og reiknum við með því að unnið sé á svipuðum forsendum og þá. Við ætlum ekki að fara að elta skottið á verðbólgunni því það færir okkur 25 ár aftur í tímann. Ég trúi því ekki í raun að ASÍ sé að stefna þangað," segir hann.
Innlent Mest lesið Þúsund íslensk ungmenni leggja undir sig Krít Innlent Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Innlent Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Innlent Guðjón Reykdal Óskarsson er látinn Innlent Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Innlent Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Innlent Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Innlent Ísland sé orðið dýrasta land í heimi Innlent Fluttur til Noregs með brunasár á um helmingi líkamans Innlent Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði slíta meirihlutaviðræðum Innlent Fleiri fréttir Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Dramatík í Hafnarfirði Mikil leynd ríkir yfir smáatriðunum Vilhjálmur verður bæjarstjóri „Ég er ekki nógu góður í slíkri skák“ Skraf Sjálfstæðismanna í húsi Snarfara Gabríel Douane fær tólf mánuði til: „Fjarstæðukennt“ að hann hafi óvart tekið símann Ráða verkefnisstjóra í málum Grindavíkur Hyggjast halda samstarfinu áfram Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Kristinn verður áfram bæjarstjóri Valdimar hafnar alfarið fullyrðingum um trúnaðarbrest Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Icelandair og flugmenn funda aftur í fyrramálið Berglind verður bæjarstjóri og Óðinn formaður bæjarráðs Inga skipar nýjan skólameistara Borgarholtsskóla Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði slíta meirihlutaviðræðum Ísland dýrast í heimi og nýr meirihluti kynntur fyrir norðan Ísland sé orðið dýrasta land í heimi „Getum við þá hætt að tala um rafvarnarvopn?“ Árni skólameistari heldur embættinu Skipuð rektor MH fyrst kvenna Lokatölur í Mýrdalshreppi: Nýr listi með flest atkvæði Tvær sóttu um stöðu skólameistara Fjölbrautaskóla Suðurnesja Halla og Björn á ferð um Suðurland í dag Eldur kom upp í vélarúmi báts Guðjón Reykdal Óskarsson er látinn Sjá meira