Erlent

Skógareldar blossa upp í Portúgal

Skógareldar blossuðu upp á ný í Portúgal í nótt. Ríflega 200 slökkviliðsmenn hafa verið kallaðir út til þess að berjast við verstu eldana í norðurhluta landsins auk þess sem þrjár flugvélar eru notaðar við slökkvistarfið. Alls hafa um 70 manns neyðst til að yfirgefa heimili sín vegna eldanna. Gríðarlegir þurrkar hafa verið í Portúgal í sumar og þurftu Portúgalir m.a. að kalla eftir aðstoð frá nágrannaríkjum sínum til þess að berjast við skógarelda sem kviknuðu í kjölfarið. Um 255 þúsund hektarar af skóglendi hafa brunnið í landinu í ár.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×