Fá bikarinn á Brúnni eftir viku 1. maí 2005 00:01
Eiður Smári Guðjohnsen náði í gær þeim frábæra árangri að verða Englandsmeistari í knattspyrnu með liði sínu Chelsea sem lagði Bolton 2-0 á útivelli. Eiður er fyrstur íslenskra knattspyrnumanna til að hampa þessum titli en bikarinn verður afhentur næsta laugardag þegar Chelsea mætir Hermanni Hreiðarssyni og félögum í Charlton á heimavelli. Í millitíðinni er hins vegar stórleikur því á þriðjudag er seinni leikur Liverpool og Chelsea í undanúrslitum Meistaradeildarinnar, en fyrri leik liðanna lauk með markalausu jafntefli. Það lið sem vinnur kemst í úrslitaleik Meistarakeppninnar, nokkuð sem alla knattspyrnumenn dreymir um. Eiður Smári á þannig möguleika á því að verða fyrsti íslenski Englandsmeistarinn í knattspyrnu og fyrstur Íslendinga til að spila úrslitaleik í Meistaradeildinni í sömu vikunni. Arnór Guðjohnsen faðir Eiðs Smára var á leiknum í gær. Hann samfagnar syni sínum og segir að lokasprettur liðsins hafi verið frábær. Hann hafi orðið eilítið hræddur um að liðið gæfi eftir er nær drægi leiktíðarlokum en það hafi staðið sig frábærlega. Aðspuður um stemmninguna að leik loknum segir Arnór að þúsundir Chelsea-aðdáenda hefðu þust út á götur í kjölfar sigursins með fána og flögg til að fagna sigrinum. Það hafi verið gríðarlega gaman. Arnór segist ánægður með að Chelsea hafi gert út um meistaratitilinn í gær vegna leiksins gegn Liverpool í Meistaradeildinni sem verði gríðarlega erfiður og það væri frábært ef liðið ynni líka þar. Það sé mikil spenna hjá liðinu núna og vonandi standist það hana. Aðspurður hvort hjarta hans sem föður hefði slegið hraðar í gær játar Arnór það og segist feginn að Englandsmeistaratitilinn sé í höfn. En hjartað fari aftur að slá örar á þriðjudaginn.
Enski boltinn Íslenski boltinn Innlent Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Góður sigur Stjörnunnar á meisturunum Fótbolti Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Uppgjörið: Valur – Þór/KA 0-0 | Markalaust í bragðdaufum leik á Hlíðarenda Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fylkismenn fengu hjálp á síðustu stundu og unnu svo í framlengingu „Það er alltaf gaman að vera á þeim stað í töflunni“ „Stelpurnar voru bara geggjaðar“ Á sársaukafullar minningar af HM Uppgjör: FH komið á toppinn Russell byrjar á ráspól í Barcelona Uppgjörið: Sterk viðbrögð Grindavíkur/Njarðvíkur skiluðu mikilvægum sigri Magdeburg tapaði í undanúrslitum Stemningin á Times Square engri lík Góður sigur Stjörnunnar á meisturunum Uppgjör: Markalaust jafntefli þrátt fyrir fjörugan leik Stórsigur í Stokkhómsslagnum Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Verður ekki með í fyrsta leik á HM Æfingatækjum stolið af enska landsliðinu Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli „Hundgamall“ klefafélagi Tómasar spilar á HM Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Brasilísk fótboltagoðsögn lést rétt fyrir HM Dagskráin: Besta kvenna aftur af stað með risadegi Páfinn gerður að heiðursfélaga hjá Real Madrid Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Segir að franska liðið sé betra en það sem vann HM 2018 Sjá meira