Blair gefur eftir 2. desember 2005 11:13
Bretar eru tilbúnir að gefa eftir hluta af endurgreiðslum sínum til að sátt náist um nýtt fjárlagafrumvarp innan Evrópusambandsins. Umræðan um nýtt fjárlagafrumvarpið fyrir árin 2007 til 2013 hefur verið í algjörum hnút, enda virðist enginn tilbúinn að fórna neinu. Frakkar neita að gefa eftir gríðarlega landbúnaðarstyrki og hingað til hafa Bretar ekki viljað fórna neinu af himinháum endurgreiðslum sem Margret Thatcher samdi um á sínum tíma, auk þess sem tíu ríkin nýju vilja fá sinn skerf af kökunni, enda þau lönd sem einna helst þurfa á fjárhagsaðstoð að halda. Nú er hins vegar ekki loku fyrir það skotið að eitthvað þokist í samningsátt á næstunni. Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands mun í dag bjóðast til að gefa eftir hluta rúmlega fjögur hundruð milljarða endurgreiðslum sem Bretar sömdu um á sínum tíma. Á móti vill hann að Frakkar geri slíkt hið sama varðandi landbúnaðarstyrkina og eins að hin nýju ríki slaki aðeins á kröfum sínum. Eins og fyrri daginn gæti þó reynst erfitt að sætta alla og þannig voru fyrstu viðbrögð frá Eistum við tillögunum til að mynda ekki jákvæð. Blair bindur þó vonir við að samkomulag náist fyrir árslok, þegar Bretar gefa eftir forsæti í Evrópusambandinu.
Erlent Fréttir Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Lögreglan lýsir eftir Ingu Rún Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira