Gætu misst af fyrstu leikjum 3. ágúst 2005 00:01
Margir hafa skráð sig undanfarna daga fyrir ADSL-tengingu hjá Símanum vegna enska boltans og eru nú um þrjú þúsund manns á biðlista. Allt að mánaðarbiðtími er eftir tengingunni en aðeins hálfur mánaður er þangað til leiktímabilið hefst. "Við ætlum að gera okkar besta til að tengja alla áhorfendur enska boltans áður en tímabilið byrjar," segir Eva Magnúsdóttir, upplýsingafultrúi Símans. "Við erum búin að bæta við starfsfólki í uppsetningum." Hún segir ekki alla á biðlistanum vera að bíða eftir boltanum, en vissi ekki nákvæmlega hve hátt hlutfall þeirra er. "Þetta er skilgreindur hópur hjá okkur sem búið er að setja í forgang. Ef einhverjir fá ekki tengingu tímanlega verður sérstaklega tekið á því." Þeir sem ekki hafa breiðband verða að kaupa ADSL-þjónustu Símans til að gerast áskrifendur að enska boltanum og þurfa að skipta yfir til Símans hafi þeir áður verið með ADSL hjá öðrum fyrirtækjum. "Margir hafa kvartað undan þessu hjá okkur," segir Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna. "Er ekki þarna komin skýring á því af hverju Síminn vildi gerast hluthafi í Skjá einum?" Jóhannes segir að Síminn hafi þarna með fyrirtækjakaupum náð einokunarstöðu á þessari þjónustu. "Þeir sem eru áhorfendur enska boltans hugsa sig ekki tvisvar um áður en þeir fara yfir til Símans." Jóhannes segir samtökin telja þetta mjög hæpið út frá samkeppnissjónarmiðum. "Skjár einn kaus að dreifa enska boltanum um ADSL-kerfi og breiðband Símans," segir Eva Magnúsdóttir, upplýsingafulltrúi Símans. "Því ekkert óeðlilegt við það að hann sé eingöngu á kerfum Símans. Kerfið er jú með mjög mikla útbreiðslu." Eva vill sérstaklega minna áhugamenn um enska boltann á breiðbandið þar sem mun fljótlegra sé að virkja það. Um 40.000 heimili á höfuðborgarsvæðinu hafa nú aðgang að því.
Fréttir Innlent Mest lesið Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Fleiri fréttir Kölluð út á efsta forgangi þegar tveir féllu útbyrðis Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Sjá meira