Erlent

Sjítar spá borgarastyrjöld

Írak er á barmi allsherjar borgarastyrjaldar að mati leiðtoga Sjíta í landinu. Sjítaklerkurinn og þingmaðurinn Sjeik- al Saghir sagði á írakska þinginu í gær að stríð gegn sjítum væri að brjótast út og með sama áframhaldi yrði erfitt að stöðva herská samtök Sjíta, sem brátt myndu svara fyrir sig og þá væri voðinn vís. Ástæða þess að ástandið í Írak væri ekki enn verra en raun bæri vitni væri að tekist hefði að halda aftur af herskáum Sjítum. Það yrði erfitt mikið lengur ef fram héldi sem horfði. Langflestir þeirra hundrað og fimmtíu sem létust í árásum uppreisnarmanna í Írak um helgina voru Sjítar



Fleiri fréttir

Sjá meira


×