Erlent

Skógareldar á Spáni

Fjórtán spænskir slökkviliðsmenn fórust í baráttu við skógarelda í gær. Eldarnir hafa þegar eyðilagt um fimm þúsund hektara af skógi vöxnu landi og hafa hundruðir þurft að yfirgefa heimili sín vegna þessa. Seint í gærkvöldi hafði enn ekki tekist að slökkva eldana, sem talið er að hafi kviknað út frá grilli. Mikill hiti og þurrkar ollu því svo að eldarnir breiddust út með leifturhraða.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×