Vandræði Merkel strax hafin 11. október 2005 00:01
Angela Merkel er ekki einu sinni orðin kanslari - formlega séð - en vandræðin eru strax byrjuð. Verðandi samstarfsflokkurinn, jafnaðarmannaflokkurinn, grefur undir henni og systurflokkurinn í Bæjaralandi, undir leiðsögn Edmunds Stoiber, gerir slíkt hið sama. Angela Merkel var ekki sigri hrósandi þegar hún greindi frá því í gær að hún myndi leiða nýja ríkisstjórn sem kanslari og kannski var það vegna þess að hún hafði á tilfinningunni hvað væri í vændum. Nú hafa bæði talsmenn jafnaðarmanna og flokksformaður CSU, systurflokks kristilegra demókrata í Bæjaralandi, lýst þeirri skoðun sinni að kanslari í samsteypustjórn stóru flokkanna hafi ekki sömu völd og kanslarinn hefur í hefðbundinni stjórn. Það verði því ekki hlutverk Angelu Merkel að leggja línurnar, eins og venjan er, heldur verði það hlutverk flokksformanna og formanna þingflokka að setjast saman og útkljá þau mál. Ekki er víst að Merkel sjái málið í sama ljósi og karlarnir sem lýst hafa þessari skoðun sinni og virðist sem hún eigi ærið starf framundan við að setja saman starfhæfa stjórn og halda aga á mannskapnum í þokkabót. Fyrstu kannanir sem gerðar eru á skoðunum Þjóðverja á nýja stjórnarmynstrinu eru komnar út. Fimmtíu og fjögur prósent aðspurðra eru á því að samsteypustjórnin geti leyst þau vandamál sem blasa við en þrjátíu og sjö prósent eru á því að nýja stjórnin hafi stöðnun í för með sér. Sjötíu og fimm prósent aðspurðra sögðu stjórnina neyðarlausn.
Erlent Fréttir Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Fleiri fréttir „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sjá meira