Töf á aðildarsamningum við Tyrki? 29. september 2005 00:01
Abdullah Gul, utanríkisráðherra Tyrklands, sagði í gær að samninganefnd Tyrklands í fyrirhuguðum aðildarviðræðum við Evrópusambandið yrði ekki send til að hefja viðræðurnar nema henni berist fyrst skjalið sem geymir samningsumboð ESB. "Enginn getur ætlast til þess af okkur að fara til Lúxemborgar áður en við fáum að sjá samningsumboðið," sagði Gul, en hann á að verða formaður samninganefndar Tyrkja. "Auðvitað er hugsanlegt að viðræðurnar hefjist ekki," sagði Gul en bætti við að "allt yrði reynt" til að jafna ágreining svo að unnt verði að standa við áformin um að hefja viðræðurnar á mánudag. Utanríkisráðherrar ESB munu á sunnudag halda bráðafund um málið eftir að fastafulltrúum ESB-ríkjanna 25 mistókst að ná samkomulagi um samningsumboðið í gær, en í því skal kveðið á um samningsgrundvöll ESB í hverjum málaflokki fyrir sig. Fulltrúar Austurríkis hafa staðið í vegi fyrir að skjalið sé afgreitt, en þeir vilja að Tyrkjum séu boðin náin tengsl við sambandið en ekki full aðild. Tyrkneskir ráðamenn hafa hins vegar ítrekað lýst því yfir að það þýði ekki að bjóða þeim neitt annað en fyrirheit um fulla aðild. Innan Evrópusambandsins er líka útbreidd óánægja með að Tyrkir skuli enn neita að viðurkenna Kýpurstjórn, en gríski hluti eyjarinnar gekk í ESB í fyrra, og að þeir sýni ekki neinn vilja til að viðurkenna fjöldamorð hers Tyrkjasoldáns á Armenum á árunum 1915-1922, en í mörgum Evrópuríkjum hafa þau verið skilgreind sem þjóðarmorð.
Erlent Fréttir Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Fleiri fréttir Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september Sjá meira