Byggðir að sökkva vegna hlýnunar 29. september 2005 00:01
Byggðir í Alaska eru hreinlega að sökkva vegna hlýnunar á norðurslóðum og lífverur eru í vanda á svæðinu vegna breytts umhverfis. Í gær voru birtar gervihnattamyndir sem sýndu að ekki hefur verið minni ís á Norðurpólnum í heila öld. Íshellan gæti verið horfin innan hundrað ára ef fram fer sem horfir. Ísinn hefur minnkað um 30 prósent síðan árið 1978 og bráðnunin verður sífellt hraðari. Íbúar Alaska hafa ekki farið varhluta af hlýnun loftslagsins á norðurhveli. Jarðvegurinn verður gljúpur í þíðunni, vegir og önnur mannvirki sökkva í drullu og óæskilegum skordýrum fjölgar ört. Það sem er að gerast í Alaska er fyrirboði þess sem koma skal í öðrum heimshlutum, segja vísindamenn við lífríkis- og loftslagsrannsóknarstöðina í Alaska. Meðalhitinn hefur hækkað úr tveimur gráðum á Selsíus í þrjár á síðustu fimmtíu árum í Alaska sem er mun meiri hækkun en annars staðar í heiminum. Mestu hitabreytingarnar eru á veturna og vorin. En hvað veldur eru menn ekki á eitt sáttir um þótt margir vísindamenn segi þetta að minnsta kosti að hluta til rekja til gróðurhúsaáhrifa. Skordýrum í þessum heimshluta hefur fjölgað til muna og munar þar mestu um skaðann af þeim sem naga sundur timbur. Það hefur aftur afar slæmar afleiðingar fyrir skógana sem einnig eru þurrari vegna hitans og skógareldar því tíðari. Vegir eyðileggjast í þíðunni og hús í sumum þorpunum síga niður í jörðina um leið og frostið fer úr jörðu. Íbúar þorpsins Shishmaref á Chukchi Sea eyju finna rækilega fyrir þessu. Þeir eru nú að undirbúa flutning þorpsins þar sem húsin eru hreinlega að sökkva og landið í raun orðið óbyggilegt. Á gervihnattamyndunum og rannsóknum sem NASA og Háskólinn í Washington birtu í gær, sést glögglega hversu mikið ísinn hefur minnkað. Breyttar aðstæður hafa einnig skapað erfiðleika fyrir ýmsar dýrategundir, til dæmis hvítabirni, sem stunda veiðar á ísbrúninni. Hlýrri hafstraumar hafa breytt laxagöngum og gert norðurslóðir að meira aðlaðandi stað fyrir ýmis meindýr sem leggjast á laxinn. Norðurhvelið gæti nú verið fast í erfiðri víxlverkun, segja vísindamennirnir. Um leið og ísinn hverfur verður minna eftir til að endurkasta geislum sólarinnar, segir Vladimir Romanovsky, vísindamaður við Fairbanks-háskóla í Alaska, og fleiri dökk svæði sem gleypa í sig hitann. Þannig er fyrirséð að það verði sífellt hlýrra á norðurslóðum eftir því sem ísinn bráðnar.
Erlent Fréttir Mest lesið Játaði loksins að hafa myrt Emilie Meng fyrir áratug Erlent Streymdu árásinni í beinni á netinu Erlent Sífellt fleiri telja Íslandsferð ekki þess virði Innlent Bannar Skattinum að rannsaka Trump og fjölskyldu Erlent Sviðin rafbyssupíla enn í kirkjugarðinum Innlent Erindreki Trumps fékk skýr skilaboð frá Grænlendingum Erlent Vill Skúla Tómas á stofnun: „Ég hef enga þörf fyrir að pína hann“ Innlent Boeing 757-þotan lifir lengur hjá Loftleiðum Innlent Réðust á starfsmann sem mat bílinn óökuhæfann Innlent Biðst afsökunar en neitar sök í máli Írisar Helgu: „Ég lét spila með mig“ Innlent Fleiri fréttir Játaði loksins að hafa myrt Emilie Meng fyrir áratug Streymdu árásinni í beinni á netinu Erindreki Trumps fékk skýr skilaboð frá Grænlendingum Bannar Skattinum að rannsaka Trump og fjölskyldu Pútín lentur í Peking Sonur stofnanda Mango handtekinn í tengslum við andlát föður síns Segja Breta myndu þurfa að uppfylla sömu kröfur og önnur umsóknarríki Venstre vill minnihlutastjórn í Danmörku Tveir látnir og fjórir alvarlega særðir eftir skotárás á Spáni Stjórnvöld í Tasmaníu biðjast afsökunar á líffæra- og líkamshlutaþjófnaði Stofna 200 milljarða sjóð fyrir bandamenn Trumps og biðja forsetann formlega afsökunar Ósáttir við kröfur Trumps: „Grænlendingar eru ekki til sölu“ Táningar skutu þrjá fyrir utan mosku í San Diego Sex kafarar látnir á Maldíveyjum Sótthreinsað hantaveiruskip væntanlegt til Íslands Lýsa yfir neyðarástandi vegna ebólufaraldursins Lammy segir ekkert fararsnið á Starmer Mesti fjöldi aftaka á heimsvísu í 44 ár Segir Taívani ekki vilja átök en þeir muni ekki gefa eftir „Annars verður ekkert eftir af þeim“ Streeting vill formannsstólinn og aftur inn í Evrópusambandið Bíl ekið á hóp manna í Modena Felldu næstæðsta ISIS-liða heims: „Hélt að hann gæti falið sig í Afríku“ Skoða að gefa bandamönnum Trumps tvö hundruð milljarða Stefnir í enn ein réttarhöldin gegn Weinstein Nýr ebólufaraldur í Austur-Kongó Trump um Xi og Taívan: „Hann vill ekki sjá baráttu um sjálfstæði“ Engir flökkudrónar fundist í Finnlandi Fólki sagt að halda sig inni vegna óþekkts dróna við Helsinki Segir fimm milljóna punda gjöf „verðlaun“ fyrir Brexit Sjá meira