Lyfsalar sinna ekki upplýsingaskyldu 26. nóvember 2005 02:30 Verðlagseftirlit ASÍ segir óviðunandi að samningar um lyfjakostnað skili sér ekki betur í lægra lyfjaverði til neytenda..
Örfáir lyfsalar virðast upplýsa viðskiptavini sína um ódýrari samheitalyf sem geta lækkað lyfjakostnað þeirra, að því er fram kemur í könnun sem verðlagseftirlit Alþýðusambands Íslands hefur gert á þróun lyfjaverðs. Eftirlitið bendir á að samkvæmt gildandi reglugerð sé lyfsölum skylt að upplýsa neytendur um val á milli samsvarandi samheitalyfja sé verðmunur þeirra meiri en fimm prósent. Jafnframt þessu eru niðurstöður verðlagseftirlitsins þær, að lækkun á lyfjaverði skili sér engan veginn nægilega vel til neytenda. Samkvæmt samningum sem heilbrigðisyfirvöld gerðu í fyrra og í ár við lyfjaheildsala og smásala á lyfjaverð að lækka í áföngum fram í september 2006. Þá á það að verða sambærilegt við það sem er á hinum Norðurlöndunum. Samkvæmt könnun verðlagseftirlitsins á tveimur lyfjategundum lækkaði önnur þeirra, bólgueyðandi lyfið Voltaren Rapid, um ríflega sjö prósent en meðalafsláttur apótekanna af hluta sjúklings minnkaði jafnframt úr 7,5 prósentum í 6 prósent. Hin tegundin, mígrenilyfið Imigran, hækkaði aftur á móti um tæp fimm prósent. Þessar verðbreytingar urðu á tímabilinu 20. apríl til 1. nóvember. Verðlagseftirlitið segir "óásættanlegt að þeir samningar sem gerðir hafi verið á lyfjakostnaði skili sér ekki betur í lægra lyfjaverði til neytenda". Hvetur það neytendur til að spyrjast fyrir hjá læknum og lyfsölum um hvort til séu ódýrari samheitalyf og lækka þar með lyfjakostnað sinn.
Innlent Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Innlent Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Innlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ Innlent Fleiri fréttir Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Sjá meira