Erlent

Mikil reiði vegna bágrar aðstoðar

Árangur björgunaraðgerða vegna fellibylsins er óviðunandi, sagði Bush Bandaríkjaforseti í dag áður en hann hélt suður á bóginn til að skoða hamfarasvæðin með eigin augum. Forsetinn lofaði allri mögulegri aðstoð en fyrir marga er það einfaldlega orðið of seint. Bush talaði stuttlega við fjölmiðla áður en hann lagði af stað og virtist stjórnmálaskýrendum hann loks hafa áttað sig á hversu alvarlegt ástandið væri. Gítarinn var víðs fjarri og hann talaði í alvarlegum tón. Hann sagði hjálpargögn nú berast til fórnarlambanna, milljónir lítra af vatni og miljónir tonna af matvælum. Þá væri verið bjarga fólki úr Superdome-höllinni. Forsetinn þakkaði þeim sem hafa unnið fórnfúst björgunarstarf síðustu daga en viðurkenndi að árangurinn væri ekki viðunandi. Hann sagðist enn fremur hlakka til að ræða við fólkið á staðnum þegar hann kæmi á hamfarasvæðin. Hann hygðist fullvissa íbúa á svæðinu og landsmenn alla um að yfirvöld myndu útvega þá fjármuni sem þörf væri á til að koma á röð og reglu, flytja hjálpargögn til fólksins sem hefði orðið verst úti og að hrinda af stað langtímaáætlun. Bush byrjaði á að stoppa í Mobile í Alabama sem er rústir einar eftir fellibylinn. Þaðan hélt hann til Biloxi í Mississippi en flaug aðeins yfir New Orleans. Ray Nagin, borgarstjóri New Orleans, hefur gagnrýnt stjórnvöld harðlega og spurt hvernig standi á því að daginn eftir flóðbylgjuna miklu við Indlandshaf hafi verið komin Herkúlesarvél frá bandaríska hernum hinum megin á hnöttinn að dreifa vatnsflöskum en ekkert gerist í marga daga eftir að verstu náttúruhamfarir í áratugi verði í Bandaríkjunum sjálfum. Nagin sagði að svör ráðamanna um að hjálpargögn væru á leiðinni væru þvættingur. Hann spurði hvar nautakjötið væri. Ekkert slíkt væri í borginni og engin skepna í Suðaustur-Louisiana. Þá sæi hann hvergi þau skip sem ættu að vera á leiðinni með hjálpargögn. Nagin sagði stjórnvöld í Washington ekki hafa hugmynd um hvað væri að gerast í Suðurríkjunum. Stjórnvöld hefðu flogið með fréttamenn og alls kyns drasl yfir svæðið tveimur dögum eftir hamfarirnar. Hann væri orðinn verulega reiður vegna ástandsins og lítilla viðbragða alríkisstjórnarinnar. Reiðin hefur einnig magnast hjá íbúunum síðustu daga, þar sem þeim finnst þeir hafa gleymst. Alríkisstjórnin hefur lofað hundruðum milljarða króna í björgunar- og uppbyggingarstarf og þrátt fyrir að heyrst hafi gagnrýni á að ætlunin sé að byggja borgina aftur upp á sama stað, að mestu tvo metra undir sjávarmáli, þá eru fáir sem efast um að af því verði. New Orleans er efnahagslega afar mikilvæg fyrir Bandaríkin þar sem gríðarlegt magn bæði landbúnaðarvara og olíu fer í gegnum hafnarsvæðið, upp og niður Mississippi-fljót. Öldungadeildarþingmaður Louisiana sagði í dag að líklega væru meira en tíu þúsund manns látnir í ríkinu. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra sendi í dag fyrir hönd ríkisstjórnarinnar George Bush, forseta Bandaríkjanna, samúðarskeyti vegna hamfaranna og segir þar að íslenska þjóðin sé harmi slegin vegna þess fjölda sem lét lífið og þess tjóns sem varð.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×