Stjórnleysi og óöld í miklum hita 2. september 2005 00:01
Algert stjórnleysi og óöld virðist ríkja í New Orleans fimm dögum eftir að fellibylurinn Katrín lagði borgina í rúst. Glæpalýður myrðir, stelur og nauðgar og íbúar híma enn á húsþökum matar- og vatnslausir, í meira en 30 stiga hita. Efnaverksmiðja á eystri bakka Mississippi-fljóts sprakk um hálffimmleytið í nótt að staðartíma í New Orleans og skók hverfin í kring. Það var ekki á ástandið bætandi. Algert stjórnleysi hefur ríkt í borginni undanfarna daga og bera lögreglumenn að jafnvel í svokölluðum björgunarmiðstöðvum, þar sem reyndar er litla sem enga aðstoð að fá, hafi glæpamenn vaðið uppi, myrt fólk og nauðgað konum, stolið og skemmt án þess að laganna verðir fengju við nokkuð ráðið. Verið er að senda þúsundir þjóðvarðliða á staðinn til að ná tökum á borginni á ný en það er ef til vill nokkuð seint í rassinn gripið. Við bætist að fjölmargir lögreglumenn hafa hreinlega neitað að starfa og látið sig hverfa. Henry Whitehorn, aðstoðaryfirlögregluþjónn í New Orleans, segir að þeir sem hafi sagt upp hafi sagt að þeir hafi tapað öllu og finnist það ekki þess virði að snúa aftur og verða fyrir skothríð frá ræningjum og glata líftórunni til viðbótar við allt annað sem þeir hafa misst. Borgarstjórinn hefur sent út eitt allsherjarneyðarkall og bendir á að sumir séu einfaldlega að stela úr búðunum til þess að lifa af - til að ná sér í vatn, mat, bleyjur handa ungabörnum og svo framvegis. Kathleen Blanco, ríkisstjóri Louisiana, sagði glæpamennina ekki verða tekna neinum vettlingatökum. Liðsmenn hersveita kynnu að skjóta og drepa og þeir vildu fyrir alla muni gera það ef nauðsyn krefði. Hún byggist við að þeir gerðu það. Sjúkrahúsin eru rafmagns- og lyfjalaus og útkeyrt starfsfólkið hefur sagt að þeir veikustu séu nú látnir deyja drottni sínum. Þessir sjúklingar voru færðir upp á þak þar sem búið var að lofa því að þyrla kæmi að ná í þá, sem aldrei kom. Örvæntingin er gríðarleg. John Rhinehart, stjórnandi Charity-sjúkrahússins, sagðist velta fyrir sér hvort stjórnvöld hefðu meiri áhyggjur af gripdeildunum en fólkinum sem væri við dauðans dyr á sjúkrahúsunum. Kathleen Blanco ríkisstjóri sagði marga þjást og það væri átakalegt. Allir hjálparliðarnir sem hún hefði hitt hefðu verið gráti nær. Fullorðnir menn grétu. Tugþúsundir flóttamanna hafa þegar verið fluttar frá borginni, einkum til Houston í Texas. Þeir fólksflutningar ganga þó hægt, að einhverju leyti vegna þess að sumir bílstjóranna þora hreinlega ekki inn í borgina af ótta við að glæpamenn ráðist á þá.
Erlent Fréttir Mest lesið Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Innlent Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Innlent Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Erlent Fleiri fréttir Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Minnst einn lést þegar keyrt var inn í mannfjölda í Leipzig Líkja forseta Taívan við rottu vegna Afríkuferðar Saka borgina um að víkja sér undan ábyrgð Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Giuliani á sjúkrahúsi í alvarlegu ástandi Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir eða að fleiri hermenn fari heim Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Segir Nato nú reyna að skilja ákvörðun um að afturkalla herafla Segir stríðsrekstri lokið og smeygir sér framhjá reglum Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Sjá meira