Nauðstöddum berst loks aðstoð 2. september 2005 00:01
Fjórum dögum eftir að fellibylurinn Katrín gekk yfir Louisiana barst nauðstöddum á hamfarasvæðunum loks aðstoð í gær, þegar þúsundir liðsmanna bandaríska þjóðvarðliðsins, hlaðnir vopnum, búnaði og vistum, komust þangað. Aðalverkefni hermannanna var að koma á lögum og reglu, auk þess að aðstoða nauðstadda. "Riddaraliðið er komið og það mun halda áfram að koma," hefur AP eftir einum hershöfðingjanum. Herbílalestin óð í gegnum aurugt flóðvatnið á götum New Orleans og kom að ráðstefnumiðstöðinni þar sem 15.000-20.000 borgarbúar höfðust við, einangraðir, matarlitlir og örvæntingarfullir. Margir voru svo reiðir yfir ringulreiðinni og langri biðinni eftir aðstoð að andrúmsloftið var lævi blandið. Opnir pallar herflutningabílanna voru hlaðnir hjálpargögnum. Hermenn með alvæpni sátu aftan á pöllunum. Margir tugir hópflutningabíla fylgdu í kjölfar herbílalestarinnar og stefndu að Superdome-íþróttahöllinni, en fyrir utan hana biðu þúsundir flóðflóttafólks sem afbar ekki lengur fnykinn, hitann og skítinn inni í höllinni. Gríðarleg óánægja kraumaði meðal fólksins sem hafði orðið innlyksa þarna. Borgarstjóri New Orleans og aðrir héldu því fram að alríkisyfirvöld hefðu spillt fyrir björgunarstarfinu og valdið því þar með að fjöldi fólks á flótta undan hamförunum veslaðist upp á yfirgefnum götum, matar-, vatns- og lyfjalaust. Á fimmtudag lágu lík í skítnum kringum ráðstefnumiðstöðina og margir sem leitað höfðu skjóls þar kvörtuðu sáran yfir því að yfirvöld hefðu látið þá afskiptalausa. Eldar kviknuðu og slagsmál brutust út þegar fólk reyndi sitt ýtrasta til að komast um borð í rútur sem áttu að flytja það í aðra íþróttahöll í Houston í Texas. Skipulagið var þó ekki betra en svo að margir þeirra sem þó fengu far til Houston Astrodome-leikvangsins var vísað frá þar sem þá þegar hefðu of margir verið komnir þangað inn. "Fólkið í borginni er á ystu nöf," sagði borgarstjórinn Ray Nagin í yfirlýsingu sem send var út á CNN-sjónvarpsstöðinni. "Tíminn er runninn út. Lifum við aðra nótt af? Á hvern getum við treyst? Það veit Guð einn," sagði hann.
Erlent Fréttir Mest lesið Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Innlent Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Erlent Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Innlent Fleiri fréttir Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Minnst einn lést þegar keyrt var inn í mannfjölda í Leipzig Líkja forseta Taívan við rottu vegna Afríkuferðar Saka borgina um að víkja sér undan ábyrgð Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Giuliani á sjúkrahúsi í alvarlegu ástandi Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir eða að fleiri hermenn fari heim Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Segir Nato nú reyna að skilja ákvörðun um að afturkalla herafla Segir stríðsrekstri lokið og smeygir sér framhjá reglum Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Sjá meira