Harmleikur færir fjandvini saman 9. október 2005 00:01
Talið er víst að meira en þrjátíu þúsund manns hafi farist í jarðskjálftanum nyrst í Pakistan á laugardaginn, langflestir í Pakistan en á Indlandi hafa hundruð manna einnig farist og frá Afganistan bárust fréttir af því að ein stúlka hefði látist. Þó fer fjarri því að endanleg tala látinna liggi fyrir.Jarðskjálftinn mældist 7,6 stig á Richterkvarða og átti upptök sín í Kasmír-héraði, sem áratugum saman hefur verið eitt helsta þrætuepli Pakistana og Indverja. Harmleikurinn gefur þessum fornu fjandvinum hins vegar fágætt tækifæri til þess að taka höndum saman og glíma við afleiðingar hamfaranna í sameiningu. Einungis fáeinum klukkustundum eftir að jarðskjálftinn reið yfir á laugardaginn hafði Manmohan Singh, forsætisráðherra Indlands, rætt í síma við Pervez Mussharraf, leiðtoga Pakistans, til þess að bjóða honum neyðarhjálp og björgunaraðstoð. Utanríkisráðherra Indlands ítrekaði þetta boð í viðræðum við pakistanskan starfsbróður sinn. „Sagan sýnir að þegar náttúruhamfarir verða þá höfum við náð saman á þessu svæði. Þetta er tækifæri fyrir bæði Indland og Pakistan til þess að gleyma ágreiningi sínum," sagði N.M. Prusty, yfirmaður neyðaraðstoðar á skriftstofu alþjóðlegu hjálparsamtakanna CARE á Indlandi. Tjónið varð mest í þeim hluta Kasmír-héraðs, sem Pakistanar hafa haft yfirráð yfir, en bæði löndin krefjast yfirráða yfir öllu héraðinu. Deilurnar hafa þó hjaðnað nokkuð á síðustu misserum. Síðan jarðskjálftinn reið yfir hafa ríkisstjórnir og hjálparstofnanir um heim allan sent neyðaraðstoð og læknasveitir til jarðskjálftasvæðanna, lofað fjárstuðningi og vottað Pakistönum samúð sína. „Við þurfum á alþjóðlegri aðstoð að halda. Við höfum nóg af mannskap, en við þörfnumst fjárhagsaðstoð," sagði Musharraf hershöfðingi, leiðtogi Pakistans, á laugardaginn áður en hann hélt til jarðskjálftasvæðanna. Í gær var hann staddur í Muzaffarabad, höfuðborg pakistanska hlutans í Kasmír
Erlent Fréttir Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent Fleiri fréttir „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sjá meira