Tala fórnarlamba enn óljós 6. september 2005 00:01
Í dag tókst loksins að fylla eitt af stærstu skörðunum í varnargarðinum umhverfis New Orleans. Verkfræðingar eru teknir til við að dæla vatni úr borginni og gera ráð fyrir að það taki þrjá mánuði. Þar með er vandinn þó hvergi nærri leystur, því umhverfissérfræðingar segja stórhættulegt að dæla flóðavatni blandað skólpi, líkum og spilliefnum út í Pontchartrain-vatn og Mississippi-fljót. Ray Nagin, borgarstjóri í New Orleans, hefur einnig áhyggjur af því sem flýtur í vatninu, en hann telur að tíu þúsund manns hafi týnt lífi í New Orleans einni. Um leið og vatnið minnkar er hugsanlegt að önnur áföll láti á sér kræla. Enginn veit hversu mörg fórnarlömbin eru. Tvö hundruð og fjörutíu þúsund manns hafa verið flutt til Texas en yfirvöld þar hafa beðist undan fleiri flóttamönnum þar sem ekki sé hægt að sjá um þá. Skemmtiferðaskip hafa verið útbúin sem flóttamannabúðir þar sem gert er ráð fyrir að fólk þurfi jafnvel að hafast við í hálft ár. Margir vilja hins vegar ekki láta flytja sig þangað heldur halda áfram leit að ættingjum og ástvinum. Þúsundir neita að yfirgefa New Orleans, þrátt fyrir að björgunarsveitir leiti fólks til að flytja á brott. Skammt frá, í Gulfport í Mississippi, er allt í rúst. Katrín skall þar á af fullum krafti. Lilja Ólafsdóttir Hansch býr þar. Hún sagðist hafa upplifað fellibyl áður en að þessi fellibylur væri ekkert í líkingu við það og sagðist ekki geta lýst þessu og að hún hefði aldrei séð annað eins.
Erlent Fréttir Mest lesið Afdrif Hörpunnar enn á huldu Innlent RÚV muni óska eftir upplýsingum frá EBU um símakosninguna Innlent Hundrað milljónum stolið af landsmönnum Innlent Spænska ríkissjónvarpið vill að símakosningin verði yfirfarin Erlent Dæmi um að tvær fjölskyldur deili einni au pair Innlent „Vinnubrögð sem maður er ekki vanur“ Innlent Fimm bjargað úr sjónum eftir að skemmtibát hvolfdi Innlent Hnúfubakur í banastuði í Hvalfirði Innlent Forsætisráðherra Spánar vill Ísrael í bann frá Eurovision Erlent Grindvíkingar fá að gista í húsunum sem þeir seldu Innlent Fleiri fréttir Forsætisráðherra Spánar vill Ísrael í bann frá Eurovision Banna „óæskilega“ starfsemi Amnesty International í Rússlandi Stefnir í baráttu á milli frjálslyndis og íhalds í Póllandi Árangur í viðræðum Bretlands við Evrópusambandið Ísraelsk stjórnvöld segjast ætla að hleypa hjálpargögnum á Gasa Spænska ríkissjónvarpið vill að símakosningin verði yfirfarin Nicusor Dan nýr forseti Rúmeníu Trump sorgmæddur yfir greiningu Biden Joe Biden með krabbamein Íslenskur farþegi í bílslysi þar sem barn lést Rúmenar ganga aftur að kjörborðinu Leó orðinn páfi Tveir létust þegar skip á leið til Íslands sigldi á Brooklyn-brúna Ætlar að tala við Pútín um að „binda enda á blóðbaðið“ Fimm látnir eftir þyrluslys í Finnlandi Tugir látnir eftir hvirfilbyl í Bandaríkjunum Árásirnar sagðar þær umfangsmestu síðan viðræðurnar fóru fyrir bí Níu drepnir í drónaárás á rútu Samþykktu fangaskipti á næstu dögum Hlýtur 25 ára dóm fyrir banatilræðið við Rushdie Gerðu umfangsmiklar árásir á Jemen Óásættanlegar kröfur frá Rússum á stuttum fundi Diplómatinn sem grunaður var um njósnir er látinn Sakaður um að kalla eftir dauða Trumps með mynd af skeljum „Rússland vill augljóslega stríð“ Rekja fjöldamorðið í Örebro til gremju byssumannsins vegna lífs síns Íhuga að refsa Pakistönum með stíflum og fráveituskurðum Litlar væntingar til fyrstu beinu friðarviðræðnanna í meira en þrjú ár Láta heiladauða konu ganga áfram með fóstur vegna þungunarrofsbanns Tekið tíma að bera kennsl á illa farin lík Sjá meira