Barnatælari á rauðum bíl 8. ágúst 2005 00:01
Lögreglan í Kópavogi rannsakar hvort barnaníðingur hafi reynt að tæla þrjá unga drengi út í bíl til sín í Smáralindinni á föstudaginn. Hringt var í almenningssíma í verslunarmiðstöðinni og drengjunum lofað sælgæti ef þeir kæmu út í rauðan bíl á bílastæðinu. Þetta er þriðja sinn á síðustu tíu mánuðum þar sem rauður bíll kemur við sögu í slíkum málum. Systur sem sátu á veitingastaðnum Burger King í Smáralindinni á föstudag, veittu því athygli að hringt var í gríð og erg í almenningssíma við veitingastaðinn. Þær sáu þrjá unga drengi svara í símann. Þeim var boðið að koma út í rauðan bíl utan við Smáralindina. Guðný Jónsdóttir sagði símasjálfsala hafa hringt ákaflega og í símanum var maður sem bauð þremur drengjum, sem svöruðu í símann, að koma út í bíl til sín að þiggja sælgæti. Systurnar svöruðu í símann og þá andaði maðurinn í símann í stað þess að tala. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem rauður bíll kemur upp í slíkum málum. Lögreglan í Keflavík rannsakaði fyrir stuttu mál þar sem ungum drengjum var boðið að koma upp í rauðan bíl fyrir utan grunnskóla í Keflavík og í nóvember í fyrra lokkaði maður á rauðum bíl unga stúlku upp í bíl sinn í Kópavogi og flutti hana nauðuga að Skálafellsafleggjara, þar sem hún var skilin eftir. Guðný sagði drengina hafa ætlað út til að grennslast fyrir um hvaða bíll væri fyrir utan og sagði þá hafa viljað vita nánari deili á manninum og að þeir hafi viljað fá sælgætið. Hún sagðist hafa komið í veg fyrir að þeir færu út. Hún lagði áherslu á það við foreldra að tala um fyrir börnunum sínum og banna þeim að svara í símann á svona stöðum. Öryggisverðir í Smáralindinni tilkynntu lögreglunni um málið og hefur verið unnið að rannsókn þess síðan. Að sögn Björgvins Björgvinssonar aðstoðaryfirlögregluþjóns í Kópavogi eru mál sem þessi alltaf tekin alvarlega, en ekki sé útilokað að um símagabb hafi verið að ræða.
Fréttir Innlent Mest lesið „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Innlent Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi Innlent Fleiri fréttir Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Sjá meira