Þingmenn vilja lægri sektir 6. desember 2005 06:00 Héraðsdómur Reykjavíkur. Fyrirhuguð lagabreyting gæti leitt til vægari refsinga í ákveðinni tegund mála, frestist þau fram yfir áramót.
Frestað hefur verið fram yfir áramót máli sem rekið er í Héraðsdómi Reykjavíkur á hendur framkvæmdastjóra og stjórnarmanni flutningafyrirtækis sem sakaður er um að standa ekki skil á virðisaukaskatti og opinberum gjöldum árin 2000 til 2002. Í millitíðinni gætu lög um brot mannsins breyst. Samkvæmt ákæru vantar tæpar 20,6 milljónir upp á að maðurinn hafi staðið skil á gjöldum, en samkvæmt lögum nemur þá sektin tvöfaldri brotaupphæðinni, rúmlega 41 milljón króna. Frumvarp til breytingar á lögum um virðisaukaskatt og staðgreiðslu opinberra gjalda, sem nú er í meðförum Alþingis, gerir ráð fyrir að frá sektinni megi draga upphæðir sem brotamaðurinn hafi þegar endurgreitt. Í málinu sem fyrir dómi var í vikunni kom fram að maðurinn hefði þegar endurgreitt níu milljónir króna og því gæti sekt numið um 22 milljónum króna í stað 41 milljónar. Lögmenn hafa haft á orði að gildandi sektarákvæði vegna vanskila á opinberum gjöldum séu með þyngstu refsingum dómskerfisins og á Alþingi virðist almenn samstaða um að breyta lögunum til lækkunar sekta. Frumvarpið flutti Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, en undir það rita þingmenn frá öllum flokkum. Nú er það í meðförum efnahags- og viðskiptanefndar og búist við að það verði að lögum á yfirstandandi þingi. "Já, skyndilega virðist með málinu mikill velvilji og þeir sem voru á móti hafa skipt um skoðun," segir Arnbjörg Sveinsdóttir en hún er einn meðflutningsmanna frumvarpsins.
Innlent Mest lesið Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Innlent Önnur lægð nálgast landið Veður Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Innlent Stakk og skar fórnarlambið á háls Innlent Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Innlent Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Erlent Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Erlent Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Innlent Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Innlent Fleiri fréttir Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Krapaspýja lokar Vestfjarðavegi Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Ekki hlutverk grunnskóla að kenna börnum sjálfsvörn Rafmagnsleysið og sjálfsvarnarkennsla Stakk og skar fórnarlambið á háls Auglýstu eftir framboðum og skelltu í lás yfir páska Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Keflavíkurflugvöllur á varaafli vegna eldingar Þau skipa lista Sósíalistaflokksins í Reykjavík Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Sjá meira