Telja Írana þróa kjarnorkuvopn 10. ágúst 2005 00:01
Harka færist í deilur Írana og alþjóðasamfélagsins, en Íranar ræstu í dag umdeilt kjarnorkuver. Talið er að þeir þrói kjarnorkuvopn og að í brýnu geti slegið. Síðdegis greindu írönsk stjórnvöld frá því að öll innsigli á lokuðum hlutum Isfahan-kjarnorkuversins hefðu verið rofin og að starfsemi þar væri þegar hafin. Íranar segjast þurfa að framleiða rafmagn en verulegar efasemdir eru á Vesturlöndum þar sem almennt er talið að unnið sé að þróun kjarnavopna þó að ekki séu allir sammála um hversu langt sú vinna eigi að vera komin. Ljóst er að Íranar geta auðgað úran í kjarnorkuverinu og framleitt hráefni í kjarnorkusprengjur, en til að auka óvissuna er ekki ljóst hvort að það er endilega takmarkið með kjanrorkuáætluninni eða hvort þeir vilja kúga ívilnanir út úr vesturveldunum líkt og Norður-Kóreustjórn hefur gert árum saman. Nýkjörinn forseti Írans, harðlínumaðurinn Mahmoud Ahmedinajad, hefur að auki skipað nýjan samningamann, harðlínumann sem er náinn æðsta klerki Írans, æjatolla Ali Khameini. Evrópuþjóðir með Þjóðverja, Frakka og Breta í broddi fylkingar hafa boðið Írönum ýmiss konar ívilnanir fyrir að hætta við kjarnorkuáætlun sína en Íranar höfnuðu nýjustu tilboðunum um helgina og sögðu þær móðgun. Nú er fundað stíft hjá Alþjóðakjarnorkumálstofnuninni og talið ljóst að aukin harka færist í málið. Málinu gæti verið vísað til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna sem gæti ákveðið viðskiptaþvinganir og sjálfir virðast Íranar öllu viðbúnir: fréttaritari Reuters segir tugi flugskeytavara hafi verið komið upp við kjarnorkuverið.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Innlent Fleiri fréttir Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Sjá meira