Óttast um afdrif 60 hermanna 10. ágúst 2005 00:01
Nepölsk stjórnvöld hafa vaxandi áhyggjur af afdrifum sextíu hermanna sem ekkert hefur spurst til í nokkurn tíma. Lík fjörutíu félaga þeirra fundust í vikunni en þeir féllu í átökum við uppreisnarmenn maóista. Allt benti til að hermönnunum fjörutíu hefði verið stillt upp í röð og þeir teknir af lífi. Útlimirnir höfðu verið skornir af sumum þeirra. Allar líkur eru á að uppreisnarmenn hafi staðið fyrir ódæðunum. Ian Martin, einn talsmanna Sameinuðu þjóðanna í mannréttindamálum, skoraði á uppreisnarmenn í gær að meðhöndla fanga sína í samræmi við alþjóðalög. 26 uppreisnarmenn hafa fallið undanfarna daga. Átök hafa haldið áfram í fjallahéruðum í vesturhluta landsins en þau hafa verið sterkustu vígi uppreisnarmannanna. Í gær kvaðst herinn hafa náð þar undirtökunum en viðurkenndi um leið að sextíu hermanna væri saknað. Afar róstusamt hefur verið í Nepal síðustu árin og hafa yfir 11.000 manns fallið í átökum stjórnarhersins og maóískra uppreisnarmanna sem vilja steypa Gyanendra konungi af stóli. Hann tók sér alræðisvald í febrúar, lét handtaka fjölda stjórnarandstæðinga og afnam ýmis borgaraleg réttindi. Þær ráðstafanir urðu síst til að koma á friði.
Erlent Fréttir Mest lesið „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Innlent Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Erlent Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Innlent Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Innlent Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum Innlent Fleiri fréttir Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Sjá meira