Átök á fyrsta degi brottflutnings 15. ágúst 2005 00:01
Til lítils háttar átaka kom í gær á milli ísraelskra hermanna og landnema á Gaza-ströndinni en þá hófst brottflutningur þeirra frá svæðinu með formlegum hætti. Landnemarnir hafa frest til miðnættis til að yfirgefa svæðið af fúsum og frjálsum vilja. "Þetta er erfiður en sögulegur dagur," sagði Shaul Mofaz, varnarmálaráðherra Ísraels en í gær tóku hermenn að dreifa útburðartilkynningum til íbúa landnemabyggða á Gaza þar sem þeim var gefinn frestur til miðnættis í kvöld að taka föggur sínar og yfirgefa heimili sín. Hermenn munu svo næstu þrjár vikurnar flytja þá með valdi sem ekki eru farnir á morgun. Þegar hermenn komu að hliðum Neve Dekalim, stærstu landnemabyggðarinnar á Gaza, vörnuðu hundruð landnema þeim vegarins. Hermennirnir reyndu þá að komast inn um annað hlið en þar mættu þeim mótmælendur sem brenndu bíldekk, mynduðu varnarveggi og tókust jafnvel á við þá. Bunki af útburðartilkynningum var hrifsaður af þeim og hann brenndur. Í Morag-byggðinni reyndu íbúar sömuleiðis að hefta för hermannanna en ekki kom þó til alvarlegra átaka. Þótt íbúar landnemabyggðanna og stuðningsmenn þeirra hafi mótmælt brottflutningnum kröftuglega í gær er samt talið að þeir muni á endanum gefa sig. Til marks um það hleyptu þeir flutningabílum til og frá svæðunum í gær sem í voru búslóðir fólks. Þegar hafa 8.500 íbúar svæðisins haft sig á brott. Ariel Sharon telur að brottflutningurinn muni auka öryggi Ísraela. Margir telja aftur á móti að með því að leggja byggðir Ísraela á Gaza-ströndinni muni ísraelsk stjórnvöld standa enn fastar á því en áður að halda byggðum sínum á Vesturbakkanum sem eru mun fjölmennari. Þá tilkynnti Mahmoud Abbas, forseti palestínsku heimastjórnarinnar, í gær að þingkosningar myndu fara fram 21. janúar næstkomandi. Talsmaður forsetans sagði ákvörðunina sýna að Palestínumenn væru á öruggri leið til lýðræðis.
Erlent Fréttir Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Fleiri fréttir Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Sjá meira