Á annað hundrað létust 7. desember 2005 06:30 Byggingin brennur. Þótt slökkvistarf hafi gengið vel rauk lengi úr fjölbýlishúsinu.
Talið er að nærfellt 130 manns hafi beðið bana í gær og níutíu slasast þegar herflugvél hrapaði á íbúðarhverfi í Teheran, höfuðborg Írans. Vélarbilun er sögð skýringin á slysinu. Auk tíu manna áhafnar voru 84 blaða- og fréttamenn um borð í C-130 herflugvélinni sem var á leið til borgarinnar Bandar Abbas í suðurhluta landsins. Fljótlega eftir flugtak frá flugvellinum í Teheran virðist bilun hafa komið upp í hreyflum vélarinnar og því hrapaði hún. Áður en hún féll til jarðar rakst annar vængurinn utan í tíu hæða fjölbýlishús. Enginn sem var um borð í vélinni komst lífs af, 34 á jörðu niðri létust og níutíu slösuðust. Lögregla og slökkvilið komu fljótt á vettvang og gekk slökkvistarf ágætlega. @Mynd -FoMed 6,5p CP:Öngþveiti Nokkur múgæsing greip um sig við slysstaðinn en lögregla reyndi að koma í veg fyrir að fólkið kæmi of nálægt. fréttablaðið/AP Þúsundir manna söfnuðust auk þess saman á vettvangi og kom til uppþota og öngþveitis af þeim sökum. Margir viðstaddra óttuðust um ástvini sína á slysstað og varð lögregla að varna þeim vegarins sem reyndu að komast að byggingunni. "Þetta var eins og jarðskjálfti," sagði Reza Sadeqi, kaupmaður í nágrenninu sem sá vélina hrapa. "Ég fann hitann af eldinum sem kviknaði í kjölfar slyssins. Þetta var eins og helvíti." Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, var í Sádi-Arabíu í gær en hann sendi samúðarkveðjur sínar og fullvissaði þá sem slösuðust um að um þá yrði séð. Bandarísku Lockheed-verksmiðjurnar framleiða C-130 flugvélarnar og því telja menn að vélin hafi verið frá því fyrir klerkabyltinguna 1979 þar sem grunnt hefur verið á því góða á milli Írana og Bandaríkjamanna síðan þá.
Erlent Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fleiri fréttir Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Sjá meira