Herinn með rétta búnaðinn 26. nóvember 2005 03:00 Davíð Á. Gunnarsson stjórnarmaður í Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar og ráðuneytisstjóri heilbrigðisráðuneytisins.
Eyðileggingin og hörmungarnar sem flóðbylgjan skildi eftir sig voru svo miklar að jafnvel öflug hjálparsamtök hefðu átt í erfiðleikum með að bjarga fólki þar fyrstu dagana. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin mat ástandið svo að einungis her hefði verið í stakk búinn til að takast á við afleiðingarnar. Þetta segir Davíð Á. Gunnarsson, stjórnarmaður Alþjóðaheilbrigðiseftirlitsins (WHO) og ráðuneytisstjóri í heilbrigðisráðuneytinu. "Njósnaflugvélar, njósnagervitungl og annan búnað sem her hefur yfir að ráða þurfti til að finna svæðin sem voru hjálparþurfi." Davíð fylgdist með björgunarstörfum í Asíu frá fyrsta degi enda var hann á þeim tíma stjórnarformaður stofnunarinnar. Hann var í stöðugu sambandi við starfsmann hennar, David Nabarrov, sem var kominn til starfa sólarhring eftir að flóðbylgjan skall á landi. "Það fyrsta sem hann sagði við mig þegar ég talaði við hann var að hann væri búinn að kynna sér aðstæður og það væri alveg ljóst að enginn gæti tekið á aðstæðunum nema her stórrar þjóðar. Hann ætti við Bandaríkin. Engin stofnun, engin hjálparsamtök hefðu það bolmagn sem til þyfti." Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hélt ráðstefnu um gang hjálparstarfsins í Suðaustur-Asíu á Phuket í Taílandi í apríl. "Á ráðstefnuni skynjaði maður að Taílendingarnir voru nokkuð gagnrýnir á sjálfa sig og hvernig þeirra eigin hjálparlið hefði staðið sig. Fulltrúar erlendra þjóða og stofnanna sem sóttu ráðstefnuna töldu að þeir hefðu staðið sig afburðavel," segir Davíð. Ráðstefnugestir ferðuðast um Phuket en fóru einnig norður fyrir þessa vinsælu ferðamannaeyju. "Þar heimsóttum við tvær flóttamannabúðir sem stóðu við rústir þorpa, þó ekki hefði verið hægt að sjá að þar hafi staðið þorp." Þrátt fyrir að Aceh-hérað á Norður-Súmötru í Indónesíu hafi farið verst út úr hörmungunum megi eins finna svæði í Taílandi sem hafi nánast horfið. Davíð segist oft hugsa um það sem hann upplifði þessa daga í apríl. "Ég held að ég hafi fátt gert um ævina sem eigi eftir að sitja jafn lengi í mér og þessi ferð."
Innlent Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Erlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Eldhúsdagur runninn upp Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Tryggvi Gíslason er látinn Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Sjá meira