Hugmynd um óperu vel tekið 11. nóvember 2005 03:30 Óperuhúsið. Svona myndi óperuhúsið líta út miðað við fyrstu hugmyndir. "
Okkur í Óperunni líst vel á þessar hugmyndir Gunnars; við lítum á þetta sem ákjósanlegan kost í okkar húsnæðismálum og bíðum spennt eftir að heyra meira af framvindu þessa máls," segir Bjarni Daníelsson óperustjóri um fyrirhugað Óperuhús við Borgarholt í Kópavogi. "Kjarninn í minni hugmynd var að það kæmu aðilar úr einkageiranum að fjármögnun hússins ásamt Kópavogsbæ og sú vinna stendur yfir núna og lýkur vonandi fyrir jól," segir Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi og höfundur hugmyndarinnar. Hann vill ekki geta sér til um það hvenær framkvæmdir gætu hafist en fyrirhugað er að þær taki tvö til tvö og hálft ár. "Þetta er ennþá bara hugmynd og skýr hönnun liggur ekki enn fyrir en gert er ráð fyrir að húsið muni taka á bilinu 600 til 700 manns og kostnaður yrði á bilinu einn og hálfur til tveir milljarðar," útskýrir hann. @Mynd -FoMed 6,5p CP:Gunnar I. Birgisson Bæjarstjórinn tekur forskot á sæluna og syngur Kópavogsaríu þó enn sé óperuhúsið ekki orðið að veruleika. Óperuhúsið yrði byggt við jaðar Borgarholts í Kópavogi en þar eru fyrir tónleikahúsið Salurinn, Gerðarsafn, Náttúrugripasafnið og Bókasafn Kópavogs. "Meiningin er svo að tengja menningarstarfsemina alla saman þannig að ein vinni með annarri og þetta verði svona menningartorfa, þarna mætti einnig halda málþing og ráðstefnur svo þetta nýtist ekki aðeins menningunni," segir Gunnar. Hann bætir við að hugmyndir séu uppi um að byggja yfirbyggingu sem myndi tengja óperuhúsið og Gerðarsafn. @Mynd -FoMed 6,5p CP:Menningartorfa við Borgarholt Óperuhúsið er hér sett inn með tölvumynd svo hægt sé að sjá hvernig menningartorfan við Borgarholt muni líta út. Bjarni segir að markaðurinn fyrir óperu sé ekki stór á Íslandi en telur þó að óperuhús sem rúmi fleiri en sjöhundruð manns geti vel borgað sig. "Óperuhús sem er sérhannað fyrir óperuflutning en einnig nýtanlegt til ýmissa annarra listviðburða og gæti vel verið í daglegri notkun og því vel hægt að reka það svo vel sé," segir hann. Hann er sáttur við staðsetninguna. "Fyrst því var ekki komið fyrir við höfnina í Reykjavík líst mér vel á það í Kópavoginum," bætir hann við.
Innlent Mest lesið Fossvogsbrúin sé álíka gáfuleg og að setja göngustíg í Reynisfjöru Innlent Ísland land númer 197 Innlent Fleiri en tuttugu látnir eftir jarðskjálfta á Filippseyjum Erlent Lykillinn að kraftaverki að Birgir var frá Íslandi Erlent Þurftu að finna lausn á uppskáldaðri hryðjuverkaárás á Íslandi Innlent Læknir í Kópavogi blekkti fjölskyldu sína með lygasögu um krabbamein Innlent Sendiherra fannst látinn í miðborg Parísar Erlent Fjöldauppsagnir á Keflavíkurflugvelli Innlent Tillögum Trumps lýst sem uppgjöf Erlent Fyrrum meðferðarheimili sett á sölu Innlent Fleiri fréttir Útköll vegna slagsmála Þurftu að finna lausn á uppskáldaðri hryðjuverkaárás á Íslandi Fossvogsbrúin sé álíka gáfuleg og að setja göngustíg í Reynisfjöru Ísland land númer 197 Skiptastjóri þurfi að ákveða hvort hann geri kröfu í dótturfélag Play Fjöldauppsagnir á Keflavíkurflugvelli Gjaldþrotið leiðir til hópuppsagnar og afarkostir Bandaríkjaforseta Fyrrum meðferðarheimili sett á sölu Strandaglópar slaga í tuttugu þúsund Sultuslakir strandaglópar eftir heilsuferð til Split Kallar þjóðaröryggisráð saman Verulegt högg fyrir ferðaþjónustuna Eftirköstin af gjaldþroti Play og friðaráætlun á Gasa Læknir í Kópavogi blekkti fjölskyldu sína með lygasögu um krabbamein Áhyggjur landsmanna af útbreiðslu hernaðarátaka í Evrópu aukast Hættir sem þingflokksformaður Sundlaugar borgarinnar verði bættar fyrir ungbarnafjölskyldur Hópslagsmál og hundaárás Vonsviknir ferðamenn og reiði út í Icelandair vegna hækkunar fargjalda Arnarflug lifað lengst í samkeppni við Icelandair Fall Play frá öllum hliðum Tilkynnt um dróna yfir Keflavíkurflugvelli Þriggja ára fangelsi: Tók ekki mark á lygilegri frásögn Neyðast til að millilenda, tapaður peningur og rándýr flug heim Lítur svo á að hann njóti ekki trausts og hefur beðist lausnar Banaslys á Skagavegi 2024: Drukknaði eftir að hafa misst stjórn í beygju Sjokk, stress og særindi í Leifsstöð Bein útsending: Lýðheilsuvísar 2025 kynntir Ekki erfitt að vera föst í 25 gráðum en ástæðan sorgleg „Óvænt og líka mjög leiðinlegt“ Sjá meira