Stimpilgjöld felld niður? 13. október 2004 00:01
Geir Haarde fjármálaráðherra segist reiðubúinn að endurskoða hvort lækka eigi eða jafnvel fella niður stimpilgjöld vegna endurfjármögnunar lána. Hann segir núverandi fyrirkomulag geta mismunað fjármálafyrirtækjum. Margrét Frímannsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði í fyrirspurnartíma á Alþingi að vegna reglna um álagningu stimpilgjalda hefði breytt samkeppnisumhverfi á húsnæðislánamarkaði ekki getað leitt sem skyldi til kjarabótar fyrir almenning. Stimpilgjöldin væru samkeppnishamlandi og fælu í sér óréttlátan skatt sem bitnaði harðast á fjölskyldum sem væru að koma sér þaki yfir höfuðið, og smærri fyrirtækjum sem ættu erfitt með að nálgast lán erlendis frá. Margrét sagði það lágmarkskröfu að stimpilgjöld á skuldbreytingum og endurfjármögnun lána verði felld niður. Samkvæmt athugun sem Samtök atvinnulífsins fengu endurskoðunarfyrirtækið KPMG til að vinna þá þekkist það vart á hinum Norðurlöndunum að lagt sé á stimpilgjald í tengslum við endurfjármögnun lána. Geir H. Haarde fjármálaráðherra benti á að oft hefði verið rætt um að lækka eða fella niður stimpilgjöld vegna lánskjara. Hann sagði núverandi fyrirkomulag geta í ákveðnum tilvikum mismunað fjármálafyrirtækjum og gert innlendum fyrirtækjum óhægara um vik í samkeppni við erlenda aðila. Ráðherra sagðist opinn fyrir því að endurskoða gjaldkerfið í stimpilgjöldum en kvaðst ekki vilja gefa óábyrg fyrirheit um lækkun einhverja tiltekinna þátta, eins og kannski lægi undir af hálfu þeirra sem lögðu fram fyrirspurnina.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Innlent „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Innlent Eðlilegt að hafa áhyggjur Innlent Fleiri fréttir Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Sjá meira