Innlent

5 með sjálfbæra ferðaþjónustu

Öll sveitarfélögin fimm á Snæfellsnesi og þjóðgarðurinn Snæfellsjökull, hafa fyrst sveitarfélaga á norðurhveli jarðar, uppfyllt skilyrði Green Globe 21 umhverfismerkingarinnar um sjálfbæra ferðaþjónustu. Þetta er sjötta svæðið í heiminum sem uppfyllir skilyrðin. Vottunin verður kynnt á ráðstefnu Alþjóðaferðamálaráðsins í næstu viku, en Ferðamálaráð Íslands vakti athygli ráðsins á vottuninni. Þeir sem leita eftir þessari vottun telja hana hvata fyrir ferðamenn að heimsækja svæðin.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×