Innlent

Félag Sólbaks fer fram á lögbann

Útgerðarfélag togarans Sólbaks hefur farið fram á lögbann gegn Sjómannasambandinu, Sjómannafélagi Eyjafjarðar, Farmanna- og fiskimannasambandinu, Vélstjórafélaginu og Einingu-Iðju, til að koma í veg fyrir að að menn á þeirra vegum trufli, eða komi í veg fyrir löndun úr togaranum, eins og gerðist í síðustu viku. Málið verður tekið fyrir hjá Sýslumanni á Akureyri núna klukkan níu, sem bendir til þess að togarinn sé væntanlegur til löndunar í dag, en Fréttastofan hefur ekki fengið það staðfest. Útgerðin ákvað fyrir helgi að krefjast skaðabóta fyrir tafir, sem fulltrúar fyrrgreindra félaga ollu við síðustu löndun úr skipinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×