Fallfnykur af Frömurum 28. júní 2004 00:01
Falldraugurinn er mættur og áttavitinn segir honum að fara beint í Safamýri. Þar búa Framarar sem hafa ekki unnið leik síðan í fyrstu umferð og miðað við frammistöðuna í síðustu leikjum þá vinna þeir ekki fleiri í sumar. FH-ingar voru reyndar góðir við þá í gær og unnu aðeins 2–1 en þeir hefðu hæglega getað klárað dæmið miklu fyrr. Hafnfirðingar fengu óskabyrjun er miðvörðurinn Sverrir Garðarsson stýrði hornspyrnu Atla Viðars Björnssonar í netið. Fram tók smá kipp næstu mínútur en skapaði ekki nokkurn hlut. Leikmenn hættu svo að spila fótbolta eftir 15 mínútur og það kom því frekar á óvart er Freyr Bjarnason setti boltann glæsilega í net Framara með hægri fæti er tvær mínútur voru eftir af hálfleiknum. Það var boðið upp á sömu steypuna í síðari hálfleik og það var ekki fyrr en Ríkharður Daðason minnkaði muninn á 64. mínútu sem leikmenn byrjuðu að spila fótbolta á ný. Það skilaði samt engu fyrir liðin og FH-ingar unnu sanngjarnan sigur í leik sem þeir áttu að vera löngu búnir að klára. Markaleikur í Grindavík Það var markaveisla í Grindavík er heimamenn tóku á móti nágrönnum sínum frá Keflavík. Heimamenn skoruðu fyrst þegar Keflvíkingar urðu fyrir því að skora sjálfsmark þriðja leikinn í röð. Orri Freyr Óskarsson bætti öðru marki við sex mínútum fyrir hlé en Sreten Djurovic minnkaði muninn fyrir Keflavík mínútu síðar. Varamaðurinn Óskar Örn Hauksson kom Grindavík síðan í 3–1 rétt eftir að honum var skipt inn á völlinn. Keflvíkingar gáfust ekki upp og Zoran Daníel Ljubicic minnkaði muninn 9 mínútum fyrir leikslok. Mikill darraðardans var stiginn á lokamínútunum en sá dans var án marka. Fram-FH 1-2 0–1 Sverrir Garðarsson 4. 0–2 Freyr Bjarnason 43. 1–2 Ríkharður Daðason 64. Dómarinn Magnús Þórisson Smámunasamur Bestur á vellinum Freyr Bjarnason FH Tölfræðin Skot (á mark) 10–17 (3–9) Horn 6–10 Aukaspyrnur fengnar 18–13 Rangstöður 1–2 Gul spjöld (rauð) 2–0 (0–0) Mjög góðir Freyr Bjarnason FH Góðir Gunnar Sigurðsson Fram Allan Borgvardt FH Emil Hallfreðsson FH Grindavík-Keflavík 3-2 1–0 Sjálfsmark (Sreten Djurovic) 25. 2–0 Orri Freyr Óskarsson 38. 2–1 Sreten Djurovic 40. 3–1 Óskar Örn Hauksson 60. 3–2 Zoran Daníel Ljubicic 81. Dómarinn Kristinn Jakobsson Slakur Bestur á vellinum Sinisa Valdimar Kekic Grindavík Tölfræðin Skot (á mark) 13–13 (8–7) Horn 2–3 Aukaspyrnur fengnar 19–21 Rangstöður 2–2 Gul spjöld (rauð) 4–3 (0–0) Góðir Sinisa Valdimar Kekic Grindavík Óskar Örn Hauksson Grindavík Orri Freyr Óskarsson Grindavík Gestur Gylfason Grindavík Albert Sævarsson Grindavík Scott Ramsey Keflavík Ólafur Gottskálksson Keflavík Guðmundur Steinarsson Keflavík Þórarinn Kristjánsson Keflavík Þriðja mark Grindavíkinga í leiknum var þeirra níunda á tímabilinu en það fyrsta sem Grétar Hjartarson átti ekki beinan þátt í. Fram að því hafði Grétar skorað fjögur mörk sjálfur og átt þátt í undirbúningi hinna fjögurra.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Carragher sagði „heiladauðan“ Hannibal hafa kostað Burnley stig Enski boltinn Beit andstæðing á HM Sport „Ef félagið vill breyta um leikstíl verður það að breyta um mann“ Enski boltinn Keane tók Shaw á teppið: „Gafst upp og alltaf meiddur“ Enski boltinn Sjáðu mörkin úr mettapi KR Íslenski boltinn Sjáðu City salta United og ískaldan Salah á vítapunktinum Enski boltinn „Ég verð að horfa í spegilinn eftir svona frammistöðu“ Íslenski boltinn Leik hætt eftir að leikmaður hné niður Fótbolti Vann maraþonið með 0,003 sekúndna mun Sport Þurftu að aflýsa síðasta leggnum vegna mótmæla Sport Fleiri fréttir Krísa í Kansas Sigur færir Eyjamönnum sæti í efri hlutanum Arnór framlengir til 2028: „Vil sjá hversu langt við getum farið“ Vann maraþonið með 0,003 sekúndna mun Leik hætt eftir að leikmaður hné niður Beit andstæðing á HM „Ef félagið vill breyta um leikstíl verður það að breyta um mann“ Sjáðu mörkin úr mettapi KR Carragher sagði „heiladauðan“ Hannibal hafa kostað Burnley stig Keane tók Shaw á teppið: „Gafst upp og alltaf meiddur“ „Arteta hefur aldrei verið með jafn góðan hóp og núna“ Sjáðu City salta United og ískaldan Salah á vítapunktinum Dagskráin í dag: Mikilvægir leikir í lokaumferðinni Skoraði hundraðasta markið eftir 637 daga fjarveru Þurftu að aflýsa síðasta leggnum vegna mótmæla Uppgjör: Valur - Stjarnan 1-2 | Stjarnan mætt af fullum þunga í titilbaráttuna Glódís langbest Íslendinga í nýja leiknum Þjóðverjar Evrópumeistarar í annað sinn „Hrikalega sáttur með þetta“ „Ég verð að horfa í spegilinn eftir svona frammistöðu“ Börsungar fóru illa með Valencia Hildur lagði upp í Madrídarslagnum „Búnir að æfa það að setja Sigurjón upp í senterinn“ Daníel Tristan skoraði tvö og benti á Guðjohnsen-nafnið Uppgjörið: KA - Vestri 4-1 | Frábær sigur dugði ekki til Guðjón Valur fagnaði sigri gegn meisturunum Uppgjörið: Valur - Tindastóll 6-2 | Fanndís fór hamförum Grikkir stálheppnir að landa bronsinu Uppgjör: FHL - Breiðablik 1-5 | Breiðablik náði 11 stiga forystu á toppnum og felldi FHL um leið Uppgjörið: FH - Fram 2-2 | Dramatík í Krikanum Sjá meira