Vestmannaeyjabær rekinn með halla 17. desember 2004 00:01
Reiknað er með að rekstur bæjarsjóðs Vestmannaeyjabæjar verði rúmar neikvæður um 52 milljónir á árinu 2005 samkvæmt fjárhagsáætlun Vestmanneyjarbæjar sem lagður var fyrir bæjarstjórn á fimmtudag. Taka á ný langtímalán upp á rúmar 127 milljónir, en greiða um 94 milljónir af eldri lánum. Langtímalán bæjarsjóðs munu því aukast um rúmar 33 milljónir. Samkvæmt áætlunni verður eigið fé bæjarsjóðs neikvætt um rúmar 185 milljónir í lok árs 2005. Bergur Elías Ágústsson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum segir að rekstur Vestmannaeyjarbæjar, líkt og sambærrilegra bæja verði þungur á næsta ári. "Það vegur þungt launahækkanir og kostnaðarauki vegna ógerðra kjarasamninga. Þessu gerum við ráð fyrir en erum ekki að reyna að fegra þetta með tölum." Andrés Sigmundsson, sem situr í minnihluta bæjarstjórn, segir ljóst að vanti pólitískan kjark til að ná fram þeirri hagræðingu sem nauðsynleg er. "Það vantar hagræðingu. Það er verið að reyna að skera niður og markið sett á fimm prósent. Það er ljóst að þeir ná þessu ekki. SS flokkarnir hafa ekki dug í sér til að ná þessu fram, heldur halda áfram að safna skuldum. Þeir eru að velta vandanum á undan sér." Bergur segir að bæjarsjóður hafi verið að safna skuldum frá 1991. Á móti komi nauðsynlegar framkvæmdir. Á næsta ári verði til dæmis farið í hafnarframkvæmdir sem eru nauðsynlegar því höfnin sé líflæð Vestmanneyinga. Eignir í lok árs 2005 eiga að vera rúmar þrír milljarðar króna. Þar af eru kröfur á eigin fyrirtæki rúmur 1,5 milljarður. Bergur segir að meirihluti þess sé vegna leigugreiðslu stofnanna og fyrirtækja bæjarins, eftir að eignir voru seldar fasteignafélagi fyrr á þessu ári, til að greiða niður óhagstæðar skuldir. Skuldir, án lífeyrisskuldbindinga verða rúmir 2 milljarðar. Þar af eru skuldir við eigin fyrirtæki rúmar 960 milljónir.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Sjá meira