Verður varðveitt í Vestmannaeyjum 15. desember 2004 00:01
Ríkið kaupir teikningar Sigmunds fyrir 18 milljónir króna. Ætlunin er að varðveita þær í óreistu meningarhúsi í Vestmannaeyjum. "Það er alveg gífurlega mikils virði að þetta safn verði á einum stað og það tvístrist ekki út um allt," segir Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra um kaup ríkisins á teikningum Sigmunds Jóhannssonar sem birst hafa í Morgunblaðinu undanfarin fjörutíu ár. Samningar um kaupin voru undirritaðir í Vestmannaeyjum í gær en ríkið greiðir Sigmund 18 milljónir króna fyrir safnið. Stendur það saman af um tíu þúsund myndum og leggst því hver mynd á um átján hundruð krónur. Til stendur að varðveita Sigmundssafn ríkisins í óreistu menningarhúsi í Vestmannaeyjum en að auki verður það skannað inn á tölvur og þannig aðgengilegt öllum almenningi. Ríkið eignast höfundarrétt að myndunum og getur ráðstafað þeim að vild. Aðspurður neitaði Halldór Ásgrímsson að Morgunblaðið fengi einnig greitt fyrir myndirnar. "Nei, nei, nei. Þessi samningur er við Sigmund og Morgunblaðið kemur þar hvergi nærri." Sigmund og Halldór Ásgrímsson heilsast.MYND/Jóhann Ingi Árnason
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Sjá meira