Skattalækkanir þyngja budduna 29. nóvember 2004 00:01
Útreikningar Fréttablaðsins sýna að barnmargar fjölskyldur og tekjuháar koma best út úr skattabreytingum ríkisstjórnarinnar. Hjálmar Árnason, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, tekur ekki jafndjúpt í árinni og Geir H. Haarde fjármálaráðherra sem telur að skattalækkanirnar hafi verið rangtúlkaðar í fjölmiðlum. Ertu sammála því að skattalækkanir ríkisstjórnarinnar hafi verið rangtúlkaðar? "Nú veit ég ekki hversu vel fólk fylgist með umræðum. Meginkjarninn er sá að verið er að þyngja buddu almennings um 15 og upp í 45 þúsund krónur á mánuði, að viðbættum húsnæðispakkanum og lækkun á endurgreiðslu námslána. Glæsilegasta dæmið sem ég hef séð um þetta slagar vel upp í eina milljón á ári í auknar ráðstöfunartekjur hjá fólki með millitekjur í lægri kantinum, sem var með dýr húsnæðislán og mikil námslán á bakinu. Þetta tel ég náttúrlega vera stórfrétt. En græða þeir ekki mest sem hæstar hafa tekjurnar? Útfærslurnar á barnabótum, með hækkun þeirra og með hækkun skerðingarmarka, eru beinlínis jöfnunaraðgerðir sem koma barnafólki með lægri tekjur til góða. Í það heila tekið er það líka fólk með lágar tekjur og millitekjur sem kemur afskaplega vel út úr þessu. Þá vil ég líka nefna þá rangtúlkun að eignaskatturinn sé bara fyrir örfáa stórmilla. Eldra fólk kemur best út úr því, fólk sem hefur á bilinu eina til eina og hálfa milljón á ári í tekjur en er að borga eignaskatt af sínu æviheimili.
Innlent Stj.mál Mest lesið Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Innlent „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Innlent „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Innlent Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Innlent Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Innlent Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Innlent „Á yfir höfði sér kærur vegna fjölda umferðarlagabrota“ Innlent Listamenn safna fyrir 10 ára dreng á Selfossi í dag Innlent Dómari krefst þess að Liam og föður hans verði sleppt úr haldi Erlent Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Innlent Fleiri fréttir Dyravörður tók gest kverkataki Geta stórbætt þjónustu fyrir þau sem greinast með krabbamein Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Sáttamiðlun úrræði sem væri alls ekki fyrir alla þolendur Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Dagur kvenfélagskonunnar er í dag 1. febrúar Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Mótmæla og biðla til utanríkisráðherra Nýir oddvitar og sáttameðferð í kynferðisbrotamálum Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Listamenn safna fyrir 10 ára dreng á Selfossi í dag „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Sprengisandur: Laxeldi, verðbólga og falsfréttir Grunaður um stórfellda líkamsárás „Á yfir höfði sér kærur vegna fjölda umferðarlagabrota“ Ölvuð kona grunuð um að valda umferðarslysi á rafhlaupahjóli Hlýnandi veður í dag og „meinlaus austanlægð“ í kortunum Hilmar Gunnarsson er oddviti í Mosfellsbæ Vilhjálmur Árnason leiðir Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ Baráttan hafi verið Viðreisn til sóma „Lúxusvandamál“ að velja og hafna á listann Stöðvuðu stolinn bíl með naglamottu eftir eftirför um alla borg Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ velja sér oddvita „Vinna er heilsuefling“ Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Blótað í Grindavík á nýjan leik Vaktin: Björg Magnúsdóttir leiðir lista Viðreisnar í borginni „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Vilja Hjallastefnugrunnskóla í Árborg Skjálftinn í Bárðarbungu 5,3 að stærð Sjá meira